Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A og X ehf.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 331/2007, í máli nr. 241/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra X ehf., var gefið að sök að hafa staðið skil á röngum virðisaukaskattsskýrslum vegna rekstraráranna 2000, 2001 og 2002, með því að vantelja skattskylda veltu og virðisaukaskatt (útskatt) á virðisaukaskattsskýrslum. Nam vantalin skattskyld velta samtals kr. 5.172.790 og vantalinn útskattur samtals kr. 1.267.333. Mögulegur innskattur nam kr. 140.440.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Fjárhæðir áætlaðs skattverðs lækkaðar.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum. 6. mgr. sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. 8. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A og X ehf., gert að greiða in solidum sekt að fjárhæð kr. 1.700.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 330/2007, í máli nr. 382/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem skráðum framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., frá 10. október 2002 til 10. apríl 2003, og frá þeim tíma einnig sem skráðum stjórnarmanni X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí og ágúst rekstrarárið 2003, á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.396.427.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilsins júlí-ágúst rekstrarárið 2003. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslu vegna framangreinds uppgjörstímabils á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.086.649.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Ekki þótti hægt að líta framhjá formlegri skráningu gjaldanda sem fyrirsvarsmanns X ehf. og m.a. með vísan til þess taldist A hafa borið ábyrgð á daglegum rekstri X ehf., þ.m.t. fjárreiðum og verið til þess bær að taka ákvarðanir um hvaða kröfur á hendur X ehf. skyldu greiddar og hverjar ekki.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 2.100.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 329/2007, í máli nr. 287/2007, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali og fylgigögnum vegna álagningar opinberra gjalda, gjaldárið 2002, vegna rekstrarársins 2001, með því að hafa vanframtalið rekstrartekjur um samtals kr. 10.008.842. Möguleg vanframtalin rekstrargjöld námu samtals kr. 1.150.645.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslu vegna uppgjörstímabilsins nóvember-desember rekstrarárið 2001. Nam vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 1.031.421 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 252.698.
Niðurstaða: Málinu vísað frá yfirskattanefnd þar sem birting tókst ekki, og þ.a.l. lá afstaða A til umfjöllunar yfirskattanefndar ekki fyrir, sbr. 2. mgr. 110. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A og X ehf.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 328/2007, í máli nr. 291/2007, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna mars-apríl rekstrarárið 2005. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslu á lögmæltum tíma vegna umrædds uppgjörstímabils. Nam fjárhæðin samtals kr. 4.199.171.
Eins var A gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds vegna launamanna X ehf., fyrir greiðslutímabilin maí, júní, júlí, ágúst, september og október rekstrarárið 2003. Nam vangoldin staðgreiðsla samtals kr. 1.087.365 og vangoldið tryggingagjald samtals kr. 161.624. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna ágúst, september og október rekstrarárið 2004, og janúar, febrúar, mars og apríl rekstrarárið 2005. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa á lögmæltum tíma skil á skilagreinum vegna umræddra greiðslutímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 4.587.372.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Tekið tillit til persónuafsláttar vegna vangoldinnar staðgreiðslu.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga. 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. 1. og 2. mgr. 15. gr., sbr. 2. mgr. 14. gr. og 1. mgr. 16. gr., 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda með áorðnum breytingum. 1. og 2. mgr. 10. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.800.000 til ríkissjóðs. X ehf. orðið gjaldþrota og þ.a.l. því ekki gert að greiða sekt.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 327/2007, í máli nr. 274/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og með prókúruumboð hjá X ehf., var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds vegna launamanna X ehf., fyrir greiðslutímabilin apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október og nóvember rekstrarárið 2002. Nam vangoldin staðgreiðsla samtals kr. 629.405 og vangoldið tryggingagjald kr. 85.412.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 15. gr., sbr. 2. mgr. 14. gr. og 1. mgr. 16. gr., 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum. 1. og 2. mgr. 10. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald. 7. mgr., sbr. 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. mgr. laga nr. 42/1995, sbr. 11. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 700.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 326/2007, í máli nr. 314/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárin 2002 og 2003. Vanframtaldar rekstrartekjur A námu samtals kr. 3.309.480.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2001 og janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002. Nam vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 3.309.480 og vanframtalinn útskattur samtals kr. 810.823.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Brotin varða við: 90. gr., sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 19. gr. og 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 3.100.000 til ríkissjóðs og kr. 750.000 til bæjarsjóðs Akureyrar.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A og X ehf.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 325/2007, í máli nr. 266/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf. vegna greiðslutímabilanna janúar, febrúar, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember og desember rekstrarárið 2004, janúar, febrúar, mars, maí, ágúst, september, október, nóvember og desember rekstrarárið 2005 og janúar og febrúar rekstrarárið 2006. Nam fjárhæðin samtals kr. 10.830.271.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna nóvember-desember rekstrarárið 2004 og janúar-febrúar, júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2005. Þá var A gefið að sök, vegna uppgjörstímabilsins nóvember-desember rekstrarárið 2004, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslu á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 10.980.678.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A og X ehf. gert að greiða in solidum sekt að fjárhæð kr. 10.000.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur
A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar
nr. 324/2007, í máli nr. 379/2006, kveðinn upp 27. desember 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skattframtali og fylgigögnum þess vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárin 2002, 2004 og 2005, vegna rekstraráranna 2001, 2003 og 2004, sem og að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali og fylgigögnum gjaldárið 2003 vegna rekstrarársins 2002. Námu vanframtaldar rekstrartekjur samtals kr. 8.718.635.
Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2001, janúar-febrúar rekstrarárið 2002, maí-júní, júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2003, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2004, janúar-febrúar, mars-apríl og maí-júní rekstrarárið 2005. Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að tilkynna skattyfirvöldum um virðisaukaskattsskylda starfsemi sína á tekjutímabilinu frá 1. janúar rekstrarárið 2002 til og með júní rekstrarárið 2005. Nam vantalin skattskyld velta öll árin samtals 12.623.935 og vantalinn útskattur samtals kr. 3.092.868.
Niðurstaða: Efnislýsing meints brots gjaldanda að því er varðar gjaldárið 2003 var ekki í samræmi við það lagaákvæði sem brotið var talið varða við auk þess sem ekki varð séð að um vantaldar tekjur væri að ræða umrætt gjaldár. Af þessum ástæðum hafnaði yfirskattanefnd kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins að því er varðaði gjaldárið 2003. Að öðru leyti þótti háttsemin sönnuð.
Brotin varða við: 90. gr. sbr. B-liður 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 6. mgr. 109. gr. sömu laga. 1. mgr. 5. gr., 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. og 3. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 6.000.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 323/2007, í máli nr. 352/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem daglegum stjórnanda X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilsins september-október rekstrarárið 2004 á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.800.749.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 3.100.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A og X ehf.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 322/2007, í máli nr. 351/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september og október rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra greiðslutímabila, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.308.000.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti innheimtum í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilsins janúar-febrúar rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök vegna fyrrgreinds uppgjörstímabils, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslu á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 78.485.
Niðurstaða: Háttsemi A þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þóttu eiga við að hluta. X ehf. hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta og því ekki gerð sekt.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga. 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 2.000.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 321/2007, í máli nr. 288/2006, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2000, vegna tekjuársins 1999 og gjaldárin 2001 og 2002 vegna tekjuáranna 2000 og 2001 og með því að vantalið launatekjur samtals um kr. 10.724.644. Nam mögulegur útlagður kostnaður samtals kr. 1.455.023.
A var heimilisfastur á Íslandi, hafði stofnað félag skráð á Bresku Jómfrúreyjum í Karabíska hafinu, en hafði tekjur vegna starfa í Danmörku sem byggðar voru á samningi félagsins við danskt félag. Skattrannsóknarstjóri ríkisins byggði á því að í raun hefði verið um vinnusamband launþega og launagreiðanda að ræða þó engar launatekjur væru tilgreindar frá félagi gjaldanda sem stofnað var á Jómfrúreyjum.
Niðurstaða: Í niðurstöðu yfirskattanefndar var sagt að í skýrslu skattrannsóknarstjóra hefði ekki verið tekin afstaða til þess hvernig haga bæri meðferð teknanna í skattskilum gjaldanda með tilliti til ákvæða tvísköttunarsamnings milli Norðurlandanna og þá m.a. hvort skattlagningarréttur vegna teknanna væri hér á landi eða erlendis, enda var lagt til grundvallar í skýrslu skattrannsóknarstjóra að um erlendar tekjur væri að ræða. Við framsetningu kröfugerðar um sektarákvörðun á hendur gjaldanda á grundvelli rannsóknar skattrannsóknarstjóra ríkisins taldi yfirskattanefnd nauðsynlegt að fjalla um og taka afstöðu til skattlagningarrétts samkvæmt ákvæðum greinds tvísköttunarsamnings og þýðingu samningsins fyrir mál gjaldanda að öðru leyti. M.t.t. þessa þótti skattrannsóknarstjóri ríkisins ekki hafa sýnt fram á skýra huglæga afstöðu gjaldanda og var honum því ekki gerð sekt.
Brotin varða við:
90. gr., sbr. A-liður 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 22. gr.,
sbr. 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga,
hvorra tveggja með áorðnum breytingum. 109. gr. laga nr. 90/2003, um
tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 320/2007, í máli nr. 266/2007, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, nóvember og desember rekstrarárið 2002, janúar til og með desember rekstrarárið 2003, janúar til og með desember rekstrarárið 2005 og janúar til og með október rekstrarárið 2006. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma til innheimtumanns ríkissjóðs vegna greiðslutímabilanna janúar til og með september, nóvember og desember rekstrarárið 2002, janúar til og með desember rekstrarárið 2003, janúar og febrúar rekstrarárið 2005 og maí rekstrarárið 2006. Nam fjárhæðin samtals kr. 7.530.442.
Niðurstaða: Málinu vísað frá yfirskattanefnd þar sem birting tókst ekki sbr. 2. mgr. 31. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A og B.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 319/2007, í máli nr. 258/2007, kveðinn upp 27. desember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., og B, sem stjórnarmanni og prókúruhafa X ehf., var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum f.h. X ehf. vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárin 2002, 2003 og 2004, vegna rekstraráranna 2001, 2002 og 2003, og með því vanframtalið rekstrartekjur samtals um kr. 6.871.152.
Eins var A og B gefið að sök að hafa staðið skil á röngum virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2001, maí-júní, júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2002 og maí-júní og júlí-ágúst rekstrarárið 2003, með því að vanframtelja skattskylda veltu og virðisaukaskatt (útskatt) á virðisaukaskattsskýrslunum. Nam vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 6.256.695 og vanframtalinn virðisaukaskattur (útskattur) samtals kr. 1.532.890.
Niðurstaða: Málinu vísað frá yfirskattanefnd þar sem birting tókst ekki sbr. 2. mgr. 110. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 291/2007, í máli nr. 294/2006, kveðinn upp 21. nóvember
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skattframtali og fylgigögnum þess vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2005, vegna rekstrarársins 2004, og með því vanrækt að gera grein fyrir rekstrartekjum samtals kr. 7.486.357.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi sinnar vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2004 og vantelja með því skattskylda veltu og virðisaukaskatt (útskatt). Nam vanframtalinn skattskyld velta kr. 7.486.357 og vanframtalinn útskattur kr. 1.834.157.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Rekstrarkostnaður dreginn frá til lækkunar rekstrartekjum.
Brotin varða við: 90. gr., sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 22. gr., sbr. 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, hvorra tveggja með áorðnum breytingum. 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 1. mgr. 5. gr., 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 3.700.000 til ríkissjóðs og kr. 100.000 til borgarsjóðs Reykjavíkur.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 290/2007, í máli nr. 330/2006, kveðinn upp 21. nóvember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem skráðum framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna ágúst, september, október, nóvember og desember rekstrarárið 2002, janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, október, nóvember og desember rekstrarárið 2003, janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember og desember rekstrarárið 2004 og janúar, febrúar, mars, apríl og maí rekstrarárið 2005. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.250.251.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt a standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2003 og janúar-febrúar og júlí-ágúst rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst og nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2003 að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 5.020.986.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 12.700.000.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 289/2007, í máli nr. 383/2006, kveðinn upp 21. nóvember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem skráðum stjórnarmanni og framkvæmdastjóra með prókúruumboð hjá X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna nóvember og desember rekstrarárið 2002 og febrúar til og með desember rekstrarárið 2003. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma vegna greiðslutímabilanna desember rekstrarárið 2002 og febrúar, mars, apríl, júní, júlí, september, október og nóvember rekstrarárið 2003. Nam fjárhæðin samtals kr. 12.553.940.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 16.500.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf. og Y ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 288/2007, í máli nr. 378/2006, kveðinn upp 21. nóvember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og prókúruhafa X ehf., og sem stjórnarmanni og prókúruhafa Y ehf. var gefið að sök eftirfarandi:
Brot vegna rekstrar X ehf.:
A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna september, október, nóvember og desember rekstrarárið 2002 og janúar rekstrarárið 2003. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna framangreindra greiðslutímabila á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 239.231.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst og nóvember-desember rekstrarárið 2002 á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.286.706.
Brot vegna rekstrar Y ehf.:
A, sem stjórnarmanni og prókúruhafa Y ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna Y ehf., vegna greiðslutímabilanna janúar til og með desember rekstrarárið 2003 og júní, júlí, ágúst og september rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna framangreindra greiðslutímabila á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 372.076.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri Y ehf., vegna uppgjörstímabilanna september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar til og með nóvember desember rekstrarárið 2003 og janúar-febrúar, mars-apríl og maí-júní rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.950.554.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Undantekning Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 6.600.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 287/2007, í máli nr. 273/2006, kveðinn upp 21. nóvember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni X ehf., var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali f.h. X ehf. vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2003, vegna rekstrarársins 2002, og vanrækt að standa skil á ársreikningi með því framtali, og með því vanframtalið rekstrartekjur samtals um kr. 10.464.432. Möguleg rekstrargjöld námu kr. 10.019.608. Nam vanframtalinn tekjuskattsstofn því kr. 444.824.
Jafnframt var A gefið að sök að hafa staðið skil á röngum virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2002, með því að vantelja skattskylda veltu og virðisaukaskatt (útskatt) á virðisaukaskattsskýrslum. Nam vanframtalin skattskyld velta samtals kr. 10.464.432 og vanframtalinn virðisaukaskattur (útskattur) samtals kr. 2.563.777. Mögulegur innskattur nam samtals kr. 174.269.
Niðurstaða: Skattrannsóknarstjóri ríkisins þótti ekki hafa sýnt fram á að hin rangfærðu skattskil hefðu leitt til þess að um undandreginn skattstofn hefði verið að ræða í skilningi 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003. Var því A ekki gerð sekt varðandi hinar meintu vanframtöldu rekstrartekjur. Háttsemi A þótti sönnuð varðandi brot gegn lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Brotin varða við: 90. gr., sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 5. mgr., sbr. 1. og 6. mgr. 109. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr., sbr. 6. mgr. sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.600.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra
ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf..
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 286/2007, í máli nr. 272/2007, kveðinn upp 21. nóvember
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á lögmæltum tíma á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna mars til og með desember rekstrarárið 2004. Þá var honum gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil, á lögmæltum tíma, á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna sömu greiðslutímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 7.723.425.
Niðurstaða: Málinu vísað frá yfirskattanefnd þar sem afstaða A til meðferðar málsins hjá yfirskattanefnd lá ekki fyrir, sbr. 2. mgr. 31. gr. laga nr. 45/1987.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 257/2007, í máli nr. 292/2006, kveðinn upp 24. október
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skattstjóranum í Reykjavík skil á skattframtali og fylgigögnum þess vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2001, vegna rekstrarársins 2000, og með því vanrækt að gera grein fyrir tekjum samtals kr. 3.629.903.
Jafnframt var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2000. Nam vanframtalin skattskyld velta kr. 3.629.903 og vanframtalinn útskattur kr. 889.322.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. A gekkst greiðlega við brotunum en nokkur dráttur varð á meðferð málsins sem A varð ekki kennt um. Virt A til lækkunar á sektarfjárhæð.
Brotin varða við: 90. gr., sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 19. og 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 6. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 1.700.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 256/2007, í máli nr. 333/2006, kveðinn upp 24. október
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skattstjóranum í Norðurlandsumdæmi vestra skil á skattframtali og fylgigögnum þess, vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2005, vegna rekstrarársins 2004, og með því vanrækt að gera grein fyrir rekstrartekjum sínum samtals að fjárhæð kr. 8.775.086 og rekstargjöldum samtals að fjárhæð kr. 4.448.542.
Jafnframt var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2004. Nam vanframtalin skattskyld velta kr. 8.775.086, vanframtalinn útskattur kr. 2.149.896 og vanframtalinn mögulegur innskattur kr. 1.424.931.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. A gekkst greiðlega við brotunum en nokkur dráttur varð á meðferð málsins sem A varð ekki kennt um. Virt A til lækkunar á sektarfjárhæð.
Brotin varða við: 90. gr., sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 22. gr., sbr. 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, hvorra tveggja með áorðnum breytingum. 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 2.000.000 til ríkissjóðs og kr. 590.000 til sveitarsjóðs Húnaþings vestra.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 255/2007, í máli nr. 293/2006, kveðinn upp 24. október
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarformanni með prókúruumboð hjá X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna nóvember-desember rekstrarárið 2003 og janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila rekstrarársins 2004, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 6.448.041.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði
laga nr. 134/2005, þótti eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 8.400.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður yfirskattanefndar
nr. 254/2007, í máli nr. 304/2006, kveðinn upp 24. október 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra með prókúruumboð hjá skattaðilanum X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 816.175.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þótti eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 1.000.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar
nr. 253/2007, í máli nr. 241/2007, kveðinn upp 24. október 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skattframtali og fylgigögnum þess vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2003, vegna rekstrarársins 2002, og með því vanrækt að gera grein fyrir rekstrartekjum samtals að fjárhæð kr. 15.604.435.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002. Nam vanframtalinn útskattur samtals kr. 3.823.087 og vanframtalin skattskyld velta kr. 15.604.435.
Niðurstaða: Málinu vísað frá yfirskattanefnd þar sem afstaða A til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd lá ekki fyrir, sbr. 2. mgr. 110. gr. laga nr. 90/2003 og 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili. A.
Úrskurður yfirskattanefndar
nr. 218/2007, í máli nr. 331/2006, kveðinn upp 12. september 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2003 og uppgjörstímabilanna janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2004. Nam vanframtalin skattskyld velta vegna framangreindra tímabila kr. 5.990.600, vanframtalinn útskattur kr. 1.467.697. Mögulegur innskattur nam kr. 31.482.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Sektarfjárhæð lækkuð m.a. vegna þess að A gekkst greiðlega við brotum, dráttur hafði orðið á málinu án þess að A yrði kennt um og álagning, byggð á skattframtölum áranna 2004 og 2005, var hærri en efni stóðu til.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 2.700.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 217/2007, í máli nr. 353/2006, kveðinn upp 12. september
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans vegna uppgjörstímabilanna maí-júní og september-október tekjuárið 2001, maí-júní, september-október og nóvember-desember rekjuárið 2002, janúar-febrúar, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember tekjuárið 2003 og mars-apríl, maí-júní og júlí-ágúst tekjuárið 2004. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 4.082.770.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þótti eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 6.100.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 216/2007, í máli nr. 377/2006, kveðinn upp 12. september
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni, vegna uppgjörstímabilanna september-október og nóvember-desember rekstrarárið 1999, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2000 og janúar-febrúar, mars-apríl og maí-júní rekstrarárið 2001. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila á rekstrarárunum 1999 og 2000 og vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar og mars-apríl rekstrarárið 2001. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.744.616.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þótti eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 1.750.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 215/2007, í máli nr. 289/2006, kveðinn upp 12. september
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni, vegna uppgjörstímabilanna frá janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2003 og janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila, að undanskildu uppgjörstímabilinu mars-apríl rekstrarárið 2004, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.862.037.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 42/1995 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðurð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.300.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur
A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 214/2007, í máli nr. 287/2006, kveðinn upp 12. september
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti, sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni, vegna uppgjörstímabilanna maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2000, janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní og september-október rekstrarárið 2001, maí-júní og nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2003, janúar-febrúar, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2004 og janúar-febrúar og mars-apríl rekstrarárið 2005. Þá var A gefið að sök, vegna uppgjörstímabilanna maí-júní og júlí-ágúst rekstrarárið 2000, maí-júní og september-október rekstrarárið 2001, maí-júní og nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2003, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2004 og mars-apríl rekstrarárið 2005, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 3.055.458.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 42/1995 þóttu eiga við að hluta. Endurgreiðslur úr ríkissjóði vegna vaxta- og barnabóta voru dregnar frá greiðslum inn á skattskuldir skattaðila.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðurð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 2.600.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 175/2007, í máli nr. 253/2006, kveðinn upp 27. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðir starfsemi hans, vegna uppgjörtímabilanna nóvember-desember rekstrarárið 1999, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2000, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2001, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2003 og janúar-febrúar til og með júlí-ágúst rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs, á lögmæltum tíma, skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 4.114.675.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 42/1995 þótti eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 7.100.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 174/2007, í máli nr. 265/2006, kveðinn upp 27. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem daglegum stjórnanda X ehf., frá 9. apríl 1999 til 10. október 2003 og frá þeim tíma sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra með prókúruumboð hjá X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna október, nóvember og desember rekstrarárið 2001, janúar, febrúar, mars, apríl og maí rekstrarárið 2002, júní, júlí, ágúst, september, október og desember rekstrarárið 2003 og júlí rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök vegna fyrrgreindra greiðslutímabila að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda. Nam fjárhæðin samtals kr. 4.356.106.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 8.250.000.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A, B og X.
Skattaðili: X.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 152/2007, í máli nr. 105/2007, kveðinn upp 6. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarformanni X ehf., og B sem framkvæmdastjóra og prókúruhafa X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna desember rekstrarárið 2004 og janúar, febrúar, mars, apríl og maí rekstrarárið 2005. Þá var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna desember rekstrarárið 2004 og janúar og mars rekstrarárið 2005, á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 3.939.166.
Eins var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar og mars-apríl rekstrarárið 2005. Nam fjárhæðin samtals kr. 3.253.668.
Niðurstaða: Málinu vísað frá yfirskattanefnd á grundvelli 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, þar sem afstaða A og B til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd lá ekki fyrir.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 151/2007, í máli nr. 124/2007, kveðinn upp 6. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni vegna uppgjörstímabilanna september-október og nóvember-desember tekjuárið 2000, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2001, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2002 og janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2003. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.588.287.
Niðurstaða: Vísað frá yfirskattanefnd á grundvelli 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, þar sem afstaða A til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd lá ekki fyrir.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 150/2007, í máli nr. 262/2006, kveðinn upp 6. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans vegna uppgjörstímabilanna mars-apríl, maí-júní, september-október og nóvember-desember tekjuárið 2000, frá janúar-febrúar til og með nóvember-desember tekjuárið 2001 og frá janúar-febrúar, mars-apríl, júlí-ágúst og nóvember-desember 2001. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma vegna framangreindra uppgjörstímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 4.730.890.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þótti eiga við að hluta.
Það hafði ekki áhrif á niðurstöðu málsins að A hafði fengið greiddar barnabætur úr ríkissjóðs sem ráðstafaði hafði verið til greiðslu skattskulda hans. Endurgreiðslur úr ríkissjóði vegna vaxta- og barnabóta voru dregnar frá greiðslum inn á skattskuldir skattaðila.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 2.750.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður yfirskattanefndar
nr. 149/2007, í máli nr 234/2006, kveðinn upp 6. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarformanni með prókúruumboð hjá skattaðilanum X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2002. Þá var A gefið að sök, vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst og september-október rekstrarárið 2002 að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.096.561, að teknu tilliti til tapaðra krafna.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2006 þótti eiga við.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 200.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 148/2007, í máli nr. 209/2006, kveðinn upp 6. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni með prókúruumboð X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna nóvember og desember rekstrarárið 2003 og febrúar til og með ágúst rekstrarárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa á lögmæltum tíma skil á skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna febrúar, júlí og ágúst rekstrarárið 2004. Nam fjárhæðin samtals kr. 3.288.187.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 42/1995 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 5.450.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A, B og X.
Skattaðili X ehf. og Y ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 147/2007, í máli nr. 122/2006, kveðinn upp 6. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og daglegum stjórnanda X ehf. og sem stjórnarmanni og daglegum stjórnanda Y ehf. og B sem skráðum framkvæmdastjóra og prókúruhafa Y ehf. var gefið að sök eftirfarandi:
Brot vegna rekstrar X ehf.:
A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf. vegna greiðslutímabilanna nóvember og desember rekstrarárið 2002. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs á lögmæltum tíma skil á skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda vegna framangreindra greiðslutímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 77.080.
Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna nóvember-desember rekstrarárið 2001 og janúar-febrúar og mars-apríl rekstrarárið 2004. Eins var A gefið a sök að hafa vanrækt að standa á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 358.134.
Brot vegna rekstrar Y ehf.:
A og B var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna Y ehf., vegna greiðslutímabilanna mars til og með október rekstrarárið 2003. Þá var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs, á lögmæltum tíma, skil á skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna mars, apríl, maí og ágúst rekstrarárið 2003. Nam fjárhæðin samtals kr. 836.531.
Eins var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri Y ehf. vegna uppgjörstímabilanna maí-júní og júlí-ágúst rekstrarárið 2003. Þá var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa, á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 345.592.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 42/1995 þóttu eiga við.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga.
2. mgr., sbr. 9. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum.
1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
1. mgr., sbr. 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 100.000 til ríkissjóðs. B gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 60.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 146/2007, í máli nr. 218/2006, kveðinn upp 6. júní 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni með prókúruumboð hjá skattaðilanum X ehf., og einnig sem framkvæmdastjóra hluta af rannsóknartímabilinu, var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna desember tekjuárið 2002, febrúar, mars, maí, júní, október, nóvember og desember tekjuárið 2003 og janúar tekjuárið 2004. Nam fjárhæðin samtals kr. 312.566.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna nóvember-desember tekjuárið 2002 og janúar-febrúar til og með nóvember-desember tekjuárið 2003. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.750.117.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.900.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 113/2007, í máli nr. 235/2006, kveðinn upp 2. maí 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs að fullu skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., á grundvelli skilagreina vegna greiðslutímabilanna maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember og desember tekjuárið 2003, og vegna launagreiðslna á tekjuárinu 2003 á grundvelli launaseðla (13. tímabil), og vegna janúar og febrúar tekjuárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs á lögmæltum tíma skil á skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda vegna fyrrgreindra greiðslutímabila tekjuárin 2003 og 2004. Nam fjárhæðin samtals kr. 3.210.076.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs að fullu skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember tekjuárið 2003. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum X ehf. vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila. Nam fjárhæðin samtals kr. 3.387.671.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005 þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. mgr. 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 9.800.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 112/2007, í máli nr. 240/2006, kveðinn upp 2. maí 2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra með prókúruumboð hjá skattaðilanum X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna júlí, september, október og desember tekjuárið 2002, mars, maí, júlí og nóvember 2003 og vegna greiðslutímabils á tekjuárinu 2003, skilgreindu sem tímabil 13 í bókhaldskerfi ríkisskattstjóra. Þá var A gefið að sök, vegna greiðslutímabilanna júlí, september, október og desember tekjuárið 2002 og mars, maí, júlí og nóvember tekjuárið 2003, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmætum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.067.903.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf., vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar og mars-apríl tekjuárið 2001, frá mars-apríl til og með nóvember-desember tekjuárið 2002 og frá janúar-febrúar til og með júlí-ágúst tekjuárið 2003. Þá var A gefið að sök, vegna uppgjörstímabilanna frá maí-júní til og með nóvember-desember tekjuárið 2002 og frá janúar-febrúar til og með júlí-ágúst tekjuárið 2003, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 3.278.653.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Undantekning frá fésektarlágmarki, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 134/2005, þótti eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.400.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 111/2007, í máli nr. 176/2006, kveðinn upp 2. maí 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda vegna launamanna sjálfstæðrar starfsemi hans, vegna greiðslutímabilanna janúar, mars, maí og september tekjuárið 2002. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra greiðslutímabila, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóð skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda, á lögmæltum tíma. Nam fjárhæðin samtals kr. 134.065.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans, vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst og september-október tekjuárið 2001 og mar-apríl, maí-júní, júlí-ágúst og september-október tekjuárið 2002. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.041.589, að teknu tilliti til tapaðra krafna. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila á tekjuárinu 2002, á lögmæltum tíma.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 1.500.000 til ríkissjóðs. Undantekning frá fésektarlágmarki, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 134/2005, þótti eiga við um ákveðin tímabil.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 110/2007, í máli nr. 36/2007, kveðinn upp 2. maí 2007.
Verknaðarlýsing: A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember tekjuárið 2002, janúar-febrúar, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember tekjuárið 2003 og janúar-febrúar, mars apríl, maí-júní og september-október tekjuárið 2004. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst tekjuárið 2002, janúar-febrúar, júlí-ágúst og nóvember-desember tekjuárið 2003 og janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní og september-október tekjuárið 2004. Nam fjárhæðin samtals kr. 2.598.152.
Niðurstaða: Málinu vísað frá þar sem afstaða A til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd lá ekki fyrir, sbr. 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 59/2007, í máli nr. 319/2006, kveðinn upp 7. mars 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali til skattstjórans í Reykjanesumdæmi vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárið 2001, vegna tekjuársins 2000, með því að vantelja starfstengdar skattskyldar greiðslur um samtals kr. 23.729.576. Leiddu hinar vanframtöldu starfstengdu greiðslur til ákvörðunar lægri tekjuskatts og útsvars vegna tekjuársins 2000.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð hvað varðar greiðslur frá X hf. en ekki hvað varðaði kr. 10.000 greiðslu frá Y ehf.
Brotin varða við: 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, vegna tekjuársins 2000, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 108. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 3.750.000 til ríkissjóðs og kr. 1.250.000 til bæjarsjóðs Garðabæjar. Litið var til 8. og 9. tölul. 1. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við ákvörðun sektarinnar.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 49/2007, í máli nr. 361/2005, kveðinn upp 21. febrúar
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum til skattstjórans í Reykjanesumdæmi vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárin 2001, 2002 og 2003, vegna tekjuáranna 2000, 2001 og 2002, með því að vantelja þar rekstartekjur alls að fjárhæð kr. 8.790.560. Háttsemin leiddi til lægri tekjuskatts- og útsvarsstofna hans en vera bar gjaldárin 2001, 2002 og 2003, o.þ.m. ákvörðunar lægri tekjuskatts og útsvars A.
Eins var A gefið að sök að hafa staðið skattstjóranum í Reykjanesumdæmi og innheimtumanni ríkissjóðs skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi sinnar vegna allra uppgjörstímabila rekstrarársins 2000, uppgjörstímabilanna janúar-febrúar, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember vegna rekstrarársins 2001, og uppgjörstímabilsins janúar-febrúar vegna rekstrarársins 2002, og jafnframt að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslu vegna uppgjörstímabilsins nóvember-desember vegna rekstrarársins 2002. Nam vantalin skattskyld velta alls kr. 11.579.731, og vantalinn útskattur alls kr. 2.837.035. Mögulegur innskattur samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðarskjölum nam alls kr. 330.671.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Þó voru heildarfjárhæðir lækkaðar þar sem túlka bar vafa sökunaut í hag.
Brotin varða við: 90. gr., sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, með áorðnum breytingum, sbr. 22. gr., sbr. 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, með áorðnum breytingum. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt, og eftir atvikum jafnframt samkvæmt 3. mgr. sömu lagagreinar að því er gjaldárin 2002 og 2003 varðar, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga. 1. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 6.300.000 til ríkissjóðs og kr. 1.400.000 til bæjarsjóðs Kópavogs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður yfirskattanefndar
nr. 48/2007, í máli nr. 208/2006, kveðinn upp 21. febrúar 2007.
Verknaðarlýsing: A sem stjórnarmanni með prókúruumboð hjá X ehf. var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf. vegna greiðslutímabilanna maí til og með desember tekjuárið 2002, janúar til og með desember tekjuárið 2003 og janúar til og með apríl tekjuárið 2004. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra tímabila, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma, utan tveggja greiðslutímabila, október 2003 og apríl 2004. Nam fjárhæðin samtals kr. 1.058.276.
Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2002 og janúar-febrúar , mars-apríl, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2003. Þá var A gefið að sök, vegna fyrrgreindra greiðslutímabila, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Samtals nam fjárhæðin kr. 5.218.301.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Ákvæði laga nr. Lækkunarákvæði laga nr. 134/2005, þóttu eiga við að hluta.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr., sbr. 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum. 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 11.800.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A og B.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 47/2007, í máli nr. 198/2006, kveðinn upp 21. febrúar
2007.
Verknaðarlýsing: A, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra með prókúruumboð hjá X ehf., og B, sem stjórnarmanni X ehf., var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf., vegna greiðslutímabilanna febrúar, mars, apríl, júní og júlí tekjuárið 2003. A var jafnframt gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna X ehf. vegna greiðslutímabilsins ágúst tekjuárið 2003. Þá var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa, á lögmæltum tíma, skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna febrúar og mars tekjuárið 2003. Fjárhæðin nam samtals kr. 1.760.688.
Eins var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna mars-apríl og maí-júní tekjuárið 2003. Þá var A og B gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs, á lögmæltum tíma, skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila. Nam upphæðin samtals kr. 2.663.474.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Brotin varða við: 1. og 2. mgr. 20. gr. sbr. 1. og 2. mgr. 15. gr. og 1. mgr. 16. gr., sbr. 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum. Eins 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1995, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.200.000 til ríkissjóðs og B gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.200.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 46/2007, í máli nr. 125/2006, kveðinn upp 21. febrúar
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skattstjóranum í Reykjavík skil á skattframtölum og fylgigögnum þeirra vegna álagningar opinberra gjalda gjaldárin 2001, 2002 og 2003, vegna rekstraráranna 2000, 2001 og 2002, og með því vanrækt að gera grein fyrir rekstrartekjum sínum samtals kr. 17.144.247.
Niðurstaða: Háttsemi gjaldanda þótti sönnuð.
Þar sem gjaldandi sætti ekki áætlun skattstjóra gjaldárin 2002 og 2003, án nokkurra ástæðna, þótti ekki rétt að gera gjaldanda sekt vegna vanrækstlu á skilum á skattframtölum og fylgigagna þeirra vegna framangreindra gjaldára.
Skilyrði 6. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 þóttu uppfyllt og var gjaldanda gert að greiða sekt á þeim grundvelli.
Brotin varða við: 90. gr., sbr. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. 2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, að því er rekstrarárið 2000 varðar og 6. mgr. sömu lagagreinar að því er rekstrarárin 2001 og 2002 varðar, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.
Úrskurðuð sekt: Gjaldandi A greiði sekt að fjárhæð kr. 450.000 til ríkissjóðs og kr. 200.000 til borgarsjóðs Reykjavíkur.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A og X ehf.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 45/2007, í máli nr. 228/2006, kveðinn upp 21. febrúar
2007.
Verknaðarlýsing: A sem stjórnarformanni og framkvæmdastjóra með prókúruumboð hjá skattaðilanum X ehf. er gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri X ehf. vegna uppgjörstímabilanna nóvember-desember rekstrarárið 2003 og janúar-febrúar, júlí-ágúst, september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2004. Eins að hafa vegna fyrrgreindra uppgjörstímabila vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur vegna framangreindra uppgjörstímabila nam samtals kr. 1.867.442.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Þá var lagt til grundvallar að greiðslur til innheimtumanns ríkissjóðs hafi numið hærri fjárhæð en svaraði til virðisaukaskatts sem í málinu greindi. Í samræmi við dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands, var því talið að sú undantekning frá fésektarlágmarki sem mælt er fyrir um í lögum nr. 134/2006, tæki til máls þessa í heild.
Brotin varða við: Háttsemi A telst varða við 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr. sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum. X ehf. gerð sekt sbr. 1. mgr. sbr. 8. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
Úrskurðuð sekt: Gjaldendur A og X ehf. greiði in solidum sekt að fjárhæð kr. 180.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 44/2007, í máli nr. 93/2006, kveðinn upp 21. febrúar
2007.
Verknaðarlýsing: Gjaldanda A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, september-október, og nóvember-desember rekstrarárið 2000, janúar-febrúar til og með nóvember-desember rekstrarárið 2001, janúar-febrúar, mars-apríl, maí-júní, júlí-ágúst og nóvember-desember rekstrarárið 2002, janúar-febrúar, maí-júní, júlí-ágúst, september-október og nóvember—desember rekstrarárið 2003 og mars-apríl rekstrarárið 2004. Eins var honum gefið að sök að hafa alfarið vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila á rekstrarárunum 2000 og 2001 og að hafa vanrækt að standa á lögmæltum tíma skil á virðisaukaskattsskýrslum vegna framangreindra uppgjörstímabila á rekstrarárunum 2002, 2003 og 2004 utan uppgjörstímabilsins janúar-febrúar rekstrarárið 2003. Vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur til innheimtumanns ríkissjóðs vegna framangreindra uppgjörstímabila nam samtals kr. 2.359.334.
Niðurstaða: Háttsemi gjaldanda A þótti sönnuð.
Ekki talið að skýringar gjaldanda um áfengis- og spilafíkn gætu leyst hann undan ábyrgð á skilum virðisaukaskatts, en gjaldandi hafði með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi allan þann tíma sem í málinu greinir.
Brotin varða við: 1. mgr. 15. gr. og 1. og 2. mgr. 24. gr., sbr 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.
Úrskurðuð sekt: Gjaldanda A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 4.500.000 til ríkissjóðs.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar
nr. 43/2007, í máli nr. 126/2006, kveðinn upp 21. febrúar 2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að telja fram í skattframtölum sínum árin 2002 og 2003 launatekjur sem skattskyldar voru, að fjárhæð kr. 2.013.220, fyrra árið og kr. 487.178, síðara árið. Hinar röngu upplýsingar á skattframtölum gjaldanda árin 2002 og 2003 leiddu til lægri álagningar opinberra gjalda hans en vera bar umrædd gjaldár.
Álitamál hvort um vinnu- eða verktakasamband milli gjaldanda A og launagreiðanda var að ræða. Fallist á rök skattrannsóknarstjóra ríkisins, að virtum gögnum málsins, að um vinnusamband hefði verið að ræða.
Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð.
Brotin varða við: 1. tl. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 1. mgr. 109. gr. sömu laga, og 19. og 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. 2. mgr. 22. gr. sömu laga.
Úrskurðuð sekt: Gjaldanda A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 950.000 til ríkissjóðs og kr. 550.000 til borgarsjóðs Reykjavíkur.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 42/2007, í máli nr. 342/2006, kveðinn upp 21. febrúar
2007.
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, öll með áorðnum breytingum, framin vegna rekstrarársins 2004.
Niðurstaða: Með vísan til 2. mgr. 110. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og 2. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, var málinu vísað frá yfirskattanefnd þar sem afstaða gjaldanda A lá ekki fyrir þar sem birting hafði ekki tekist fyrir honum.
Sektarmál
skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A, B og X ehf.
Skattaðili: X ehf.
Úrskurður
yfirskattanefndar nr. 41/2007, í máli nr. 267/2006, kveðinn upp 21. febrúar
2007.
Verknaðarlýsing: A og X ehf. var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2003, 2004 og 2005. B var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, framin vegna tekjuársins 2005.
Þess var krafist að yfirskattanefnd tæki málið til sektarmeðferðar. Með bréfi lýsti umboðsmaður gjaldanda B því yfir að gjaldandi vildi ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál hans. Engar athugasemdir bárust hins vegar frá gjaldanda A og gjaldanda X ehf.
Niðurstaða: Málsúrslit varðandi gjaldanda A og gjaldanda X ehf. þóttu ráðast að verulegu leyti af niðurstöðu gagnvart gjaldanda B. Vegna þessa og afstöðu gjaldanda B þótti óhjákvæmilegt að vísa málinu í heild sinni frá og endursenda það skattrannsóknarstjóra ríkisins.