Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 687/1994, kveðinn upp 6. júlí 1994:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa oftalið rekstrarkostnað í ársreikningum fyrir rekstrarárin 1988, 1989 og 1990 er fylgdu skattframtölum hans gjaldárin 1989, 1990 og 1991, samtals um kr. 1.729.601. Þetta hafi leitt til lægri álagningar tekjuskatts og útsvars en vera bar.
Niðurstaða: Sannað þótti að A hefði gerst sekur um brot vegna gjaldársins 1991 en ekki þótti ástæða til frekari viðurlagabeitingar en gjaldandi hafði þegar sætt með álagningu álags vegna gjaldáranna 1989 og 1990.
Brot talin varða við: 1. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 2. mgr. laga nr. 90/1990, um tekjustofna sveitarfélaga.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða kr. 100.000 í sekt til ríkissjóðs og kr. 30.000 til sveitarsjóðs.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 686/1994, kveðinn upp 6. júlí 1994:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vantalið tekjur á skattframtölum sínum árin 1989, 1990 og 1991, vegna tekjuáranna 1988, 1989 og 1990, um a.m.k. kr. 1.081.157 sem leitt hafi til lægri álagningar tekjuskatts og útsvars en vera bar.
Niðurstaða: Sannað þótti að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök.
Brot talin varða við: 1. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 2. mgr. 24. gr. laga nr. 73/1980, um tekjustofna sveitarfélaga, og laga nr. 91/1989, sbr. lög nr. 90/1990.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða kr. 200.000 í sekt til ríkissjóðs og kr. 50.000 til sveitarsjóðs.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 685/1994, kveðinn upp 6. júlí 1994:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vantalið tekjur á skattframtölum sínum gjaldárin 1989, 1990 og 1991, vegna tekjuáranna 1988, 1989 og 1990, um a.m.k. kr. 1.905.737 sem hefði leitt til lægri álagningar tekjuskatts og útsvars en vera bar.
Niðurstaða: Sannað þótti að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök.
Brot talin varða við: 1. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 2. mgr. 24. gr. laga nr. 73/1980, um tekjustofna sveitarfélaga, og laga nr. 91/1989, sbr. lög nr. 90/1990.
Úrskurðuð sekt: A gert að greiða kr. 370.000 í sekt til ríkissjóðs og kr. 80.000 til sveitarsjóðs.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 684/1994, kveðinn upp 6. júlí 1994:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vantalið tekjur í ársreikningum fyrir rekstrarárin 1990 og 1991 er fylgdu skattframtölum hans árin 1991 og 1992, samtals um kr. 971.207, og oftalið rekstrarkostnað síðara árið um kr. 596.457 sem hafi leitt til lækkunar á yfirfæranlegu tapi á skattframtölum viðkomandi ár. Þá var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskatti, samtals kr. 569.656, bæði sökum vantalins útskatts og oftalins innskatts á virðisaukaskattsskýrslum vegna rekstraráranna 1990 og 1991.
Niðurstaða: Málinu var vísað frá yfirskattanefnd þar sem ekki var talið að nægilegur grundvöllur hefði verið lagður að ákvörðun um sekt á hendur gjaldanda með því að mál hans sætti ekki sjálfstæðri rannsókn af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 683/1994, kveðinn upp 6. júlí 1994:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vantalið tekjur á skattframtölum sínum árin 1991, 1992 og 1993 um samtals kr. 801.856. Þá var honum gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskatti, samtals að fjárhæð kr. 163.336, vegna rekstraráranna 1991 og 1992.
Niðurstaða: Málinu var vísað frá yfirskattanefnd þar sem ekki var talið að nægilegur grundvöllur hefði verið lagður að ákvörðun um sekt á hendur gjaldanda með því að mál hans sætti ekki sjálfstæðri rannsókn af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur X hf.
Skattaðili: X hf.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 682/1994, kveðinn upp 6. júlí 1994:
Verknaðarlýsing: X var gefið að sök að hafa vantalið tekjur í ársreikningi fyrir rekstrarárið 1992 er fylgdi skattframtali gjaldanda árið 1993 um kr. 6.123.346 vegna kaupa á vörum frá Y, sem var dótturfyrirtæki X, á afbrigðilegu verði.
Niðurstaða: Málinu var vísað frá yfirskattanefnd þar sem ekki var talið að nægilegur grundvöllur hefði verið lagður að ákvörðun um sekt á hendur gjaldanda með því að mál hans sætti ekki sjálfstæðri rannsókn af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 214/1994, kveðinn upp 25. febrúar 1994:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að innheimta söluskatt af útseldri vinnu sinni á árinu 1988 og ekki staðið skil á skattinum, samtals kr. 399.319.
Niðurstaða: A var ekki gerð sekt þar sem málið þótti ekki fyllilega upplýst.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 198/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vantalið tekjur sínar á skattframtali ársins 1987 vegna tekjuársins 1986 um kr. 556.852.
Niðurstaða: A var ekki gerð sekt þar sem ætlað brot hans var talið fyrnt.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 197/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa ekki talið fram á skattframtölum gjaldáranna 1984, 1985, 1986 og 1987, vegna tekjuáranna 1983, 1984, 1985 og 1986, tekjur að fjárhæð samtals kr. 248.722. Um var að ræða hluta af viðskiptaafslætti sem X hf. hafði móttekið frá Y hf. og Z hf., en A var einn hluthafa fyrstnefnda félagsins. Niðurstaða: A var ekki gerð sekt í málinu þar sem talið var að sakir væru fyrndar vegna ætlaðra brota á gjaldárunum 1984, 1985 og 1986. Þá var talið að verulegar tafir hefðu orðið á meðferð málsins og því ekki talin ástæða til að gera A sekt vegna ætlaðra brota á gjaldárinu 1987.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 196/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa ekki talið fram á skattframtölum gjaldáranna 1984, 1985, 1986 og 1987, vegna tekjuáranna 1983, 1984, 1985 og 1986, tekjur að fjárhæð samtals kr. 248.722. Um var að ræða hluta af viðskiptaafslætti sem X hf. hafði móttekið frá Y hf. og Z hf., en A var einn hluthafa fyrstnefnda félagsins.
Niðurstaða: A var ekki gerð sekt í málinu þar sem talið var að sakir væru fyrndar vegna ætlaðra brota á gjaldárunum 1984, 1985 og 1986. Þá var talið að verulegar tafir hefðu orðið á meðferð málsins og því ekki talin ástæða til að gera A sekt vegna ætlaðra brota á gjaldárinu 1987.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 195/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa ekki talið fram á skattframtölum gjaldáranna 1984, 1985, 1986 og 1987, vegna tekjuáranna 1983, 1984, 1985 og 1986, tekjur að fjárhæð samtals kr. 248.722. Um var að ræða hluta af viðskiptaafslætti sem X hf. hafði móttekið frá Y hf. og Z hf., en A var einn hluthafa fyrstnefnda félagsins.
Niðurstaða: A var ekki gerð sekt í málinu þar sem talið var að sakir væru fyrndar vegna ætlaðra brota á gjaldárunum 1984, 1985 og 1986. Þá var talið að verulegar tafir hefðu orðið á meðferð málsins og því ekki talin ástæða til að gera A sekt vegna ætlaðra brota á gjaldárinu 1987.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 194/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa ekki talið fram á skattframtölum gjaldáranna 1984, 1985, 1986 og 1987, vegna tekjuáranna 1983, 1984, 1985 og 1986, tekjur að fjárhæð samtals kr. 248.722. Um var að ræða hluta af viðskiptaafslætti sem X hf. hafði móttekið frá Y hf. og Z hf., en A var einn hluthafa fyrstnefnda félagsins.
Niðurstaða: A var ekki gerð sekt í málinu þar sem talið var að sakir væru fyrndar vegna ætlaðra brota á gjaldárunum 1984, 1985 og 1986. Þá var talið að verulegar tafir hefðu orðið á meðferð málsins og því ekki talin ástæða til að gera A sekt vegna ætlaðra brota á gjaldárinu 1987.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 193/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa ekki talið fram á skattframtölum gjaldáranna 1984, 1985, 1986 og 1987, vegna tekjuáranna 1983, 1984, 1985 og 1986, tekjur að fjárhæð samtals kr. 248.722. Um var að ræða hluta af viðskiptaafslætti sem X hf. hafði móttekið frá Y hf. og Z hf., en A var einn hluthafa fyrstnefnda félagsins.
Niðurstaða: A var ekki gerð sekt í málinu þar sem talið var að sakir væru fyrndar vegna ætlaðra brota á gjaldárunum 1984, 1985 og 1986. Þá var talið að verulegar tafir hefðu orðið á meðferð málsins og því ekki talin ástæða til að gera A sekt vegna ætlaðra brota á gjaldárinu 1987.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur X hf.
Skattaðili: X hf.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 192/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: Gjaldanda var gefið að sök að hafa vantalið tekjur á skattframtölum sínum gjaldárin 1984, 1985, 1986 og 1987, um samtals kr. 1.405.836. Um var að ræða viðskiptaafslátt frá Y hf. og Z hf.
Niðurstaða: X var ekki gerð sekt í málinu þar sem talið var að sakir væru fyrndar vegna ætlaðra brota á gjaldárunum 1984, 1985 og 1986. Þá var talið að verulegar tafir hefðu orðið á meðferð málsins og því ekki talin ástæða til að gera X sekt vegna ætlaðra brota á gjaldárinu 1987.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 191/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993:
Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vantalið tekjur á skattframtali sínu 1985, vegna tekjuársins 1984, um samtals kr.125.833
Niðurstaða: A var ekki gerð sekt þar sem ætlað brot hans var talið fyrnt.
Sektarmál skattrannsóknarstjóra ríkisins á hendur A.
Skattaðili: A.
Úrskurður yfirskattanefndar nr. 190/1993, kveðinn upp 17. febrúar 1993: