Jafnréttisáætlun

Skattrannsóknarstjóra ríkisins

 

 

1. Stefna

Stefna skattrannsóknarstjóra ríkisins er að gætt skuli fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla og að hver starfsmaður verði metinn á eigin forsendum. Þannig verði tryggt að mannauður stofnunarinnar nýtist sem best. Kynbundin mismunun er óheimil, í hvaða formi sem hún birtist og er það stefna stofnunarinnar að útrýma slíkri mismunun komi hún í ljós.

 

2. Markmið

Markmið jafnréttisáætlunar er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kynferði. Þetta á m.a. við um rétt til starfa, aðstöðu, menntunar og kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf.

 

3. Leiðir að markmiðum

· Gæta skal jafnréttis við ráðningar og tilfærslur í starfi.

· Gæta skal jafnréttis hvað varðar ábyrgð og þátttöku starfsmanna í starfshópum og nefndum.

· Greiða skal jöfn laun og sömu kjör fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.

· Konur og karlar skulu eiga jafnan aðgang að starfsmenntun og þjálfun.

· Gera skal starfsmönnum kleift að samræma atvinnu og fjölskyldulíf.

· Kynferðisleg áreitni eigi sér ekki stað.

 

4. Ábyrgð

Ábyrgð á framgangi jafnréttismála er hjá skattrannsóknarstjóra, forstöðumönnum, verkefnisstjórum og yfirlögfræðingi. Skattrannsóknarstjóri skal vinna að því að jafnréttisáætlun sé framfylgt og viðhaldið og leggja mat á hvort markmiðum hennar sé náð með aðstoð annarra yfirmanna embættisins sem áður eru taldir. Skattrannsóknarstjóri er einnig ráðgjafi starfsmanna og yfirstjórnar í jafnréttismálum og fulltrúi embættisins út á við í þeim málaflokki. Stjórnendum og starfsmönnum embættisins skal standa til boða fræðsla og aðstoð í jafnréttismálum ef talin er þörf á slíku. Þetta á við störf, starfsaðstæður, kjör, samskipti á vinnustað og önnur þau mál sem lúta að jafnrétti og samskiptum kynjanna á vinnustað.

 

5. Jafnréttisnefnd

Jafnréttisnefnd skal skipuð og funda reglulega. Hún starfar á grundvelli 13. greinar laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Hlutverk hennar er að fylgja markmiðum embættisins í jafnréttismálum eftir og vera ráðgefandi fyrir stjórnendur og starfsmenn. Nefndin skal vinna að þeim verkefnum sem tiltekin eru í áætluninni og henni falin. Skattrannsóknarstjóri hefur skipað nefndina til næstu tveggja ára. Nefndin skal vera honum til aðstoðar í jafnréttismálum. Í nefndinni sitja Ómar I. Bragason, rannsóknarmaður og Guðný Bjarnarsdóttir verkefnisstjóri. Eigi sjaldnar en einu sinni á ári skal nefndin kynna skattrannsóknarstjóra stöðu jafnréttismála og hvort úrbóta kunni að vera þörf.

 

6. Sérstakar aðgerðir

6.1 Auglýsingar og ráðningar

Farið skal samkvæmt fyrirmælum í lögum og frá Fjármálaráðuneyti um auglýsingu á lausum störfum. Ef tveir jafnhæfir einstaklingar sækja um auglýsta stöðu, skal sá af því kyni sem er í minnihluta í slíkum störfum hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins, að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningu. Samkvæmt 22. gr. laga nr 96/2000 þá "teljast aðgerðir til að auka möguleika kvenna eða karla sérstaklega til að koma á jafnrétti og jafnri stöðu kynjanna ekki ganga gegn lögum þessum. Sama á við ef nauðsynlegt telst að ráða annað kynið vegna hlutlægra þátta er tengjast starfinu".

Ekki skal auglýsa eða birta auglýsingu um laust starf þar sem gefið er í skyn að fremur sé óskað starfsmanns af öðru kyninu en hinu nema ef gild rök mæla með því að einungis sé auglýst eftir öðru kyninu.

 

6.2 Starfsaðstæður

Starfsfólk skal eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma eða annarri hagræðingu þar sem því verður við komið, til að auðvelda því að samræma starf og einkalíf. Ekki er þó starfsmanni unnt að fara úr aðalstarfi í hlutastarf nema sérstaklega standi á og þá aðeins með samþykki skattrannsóknarstjóra. Tekið skal tillit til mismunandi aðstæðna svo sem umönnunar barna eða annarra fjölskyldumeðlima í samræmi við ákvæði kjarasamninga og rúmlega það eftir því sem aðstæður krefjast. Allir starfsmenn hafi góða vinnuaðstöðu, skrifborð í eðlilegri hæð, viðurkenndan skrifborðsstól og aðgang að nettengdri tölvu á vinnustað. Þá skal annar aðbúnaður vera eðlilegur og í samræmi það sem tíðkanlegt má teljast.

 

6.3 Kjör

Við ákvörðun launa og fríðinda skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Gæta skal þess að konur og karlar njóti að öllu leyti sambærilegra kjara og sambærilegra starfsaðstæðna.

 

6.4 Starfsþróun / Starfsframi

Konur og karlar skulu njóta sömu möguleika til endurmenntunar, starfsþjálfunar og til að sækja námskeið. Við úthlutun ábyrgðar og verkefna og skipan í nefndir og stjórnir á vegum skattrannsóknarstjóra ríkisins skal eftir því sem við verður komið, leitast við að hlutfall kynjanna sé sem jafnast.

 

6.5 Samskipti á vinnustað

Allir starfsmenn embættisins skulu umgangast hvern annan af virðingu og kurteisi. Rifrildi milli starfsmanna eru óheimil. Einelti starfsmanna gagnvart öðrum starfsmönnum er ekki liðið. Kynferðisleg áreitni er óheimil og starfsmenn sem verða fyrir slíkri framkomu hafa rétt til þess að kæra viðkomandi háttsemi. Fulltrúar í jafnréttisnefnd embættisins aðstoða viðkomandi við að beina málinu í réttan farveg þurfi að koma til slíks.

 

 

7. Kynning og endurskoðun jafnréttisáætlunar

Jafnréttisáætlun þessa skal endurskoða í síðasta lagi fyrir árslok 2007. Umsjón með endurskoðun skal vera í höndum nefndar stofnunarinnar um jafnréttismál og taki m.a. tillit til annarra kannana sem gerðar hafa verið um sömu mál.

 

Gert í Reykjavík í janúar 2002,

endurskoðað í nóvember 2004.

Endurskoðað 1. maí 2007.

 

 

Bryndís Kristjánsdóttir,  

skattrannsóknarstjóri