Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni á árunum 1993, 1994 og 1995, samtals kr. 1.359.507. Einnig brot gegn lögum um bókhald og ársreikninga með því að hafa ekki haldið bókhald, gert ársreikninga og varðveitt bókhaldsgögn svo sem lög áskildu vegna áranna 1992 til og með 1995.

Héraðsdómur Reykjavíkur 31. desember 1998, mál nr. 748/1998:

Ákærði var fundinn sekur um þá háttsemi sem greindi í ákæru, að því undanskildu að talið var ósannað að hann hefði látið hjá líða að varðveita bókhaldsgögnin.

Dæmd viðurlög: 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Fésekt kr. 750.000, vararefsing 65 daga fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 25. gr. laga nr. 51/1968 um bókhald, sbr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sjá 1., 4. og 5. tölul. 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995 um breytingu á þeim lögum og 25. gr. laga nr. 51/1968 um bókhald, sbr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sjá 1. mgr. 83. gr., sbr. 82. gr. laga nr. 144/1995 um ársreikninga, sbr. 3. gr. laga nr. 37/1995 um breytingu á þeim lögum og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni á árunum 1992, 1993 og 1994, samtals kr. 3.085.603. Einnig brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna ákærða á árunum 1992 og 1993, samtals kr. 497.230.

Héraðsdómur Vesturlands 18. desember 1998, mál nr. S-54/1998:

Talið var sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði framið þau brot sem honum voru gefin að sök.

Dæmd viðurlög: Fésekt 50.000 kr., vararefsing 12 daga fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 262. gr. almennra hegningarlaga og 3. gr. laga nr. 42/1995, og við 1. mgr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á þeim virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni á árunum 1993, 1994 og 1995, samtals kr. 912.864. Brot gegn lögum um tekjuskatt og eignarskatt með því að hafa látið undir höfuð leggjast að telja fram til skatts tekjur sem hann hafði af útseldri þjónustu sinni á árunum 1993, 1994 og 1995 sem námu kr. 3.564.553 og honum bar að greiða af tekjuskatt og útsvar og að hafa með þessari háttsemi komist hjá greiðslu tekjuskatts og útsvars, samtals að upphæð kr. 730.491. Ennfremur bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að halda lögboðið bókhald og semja ársreikninga á árunum 1993, 1994 og janúar til ágúst 1995.

Héraðsdómur Norðurlands eystra 3. desember 1998, mál nr. S-121/1998:

Sekt ákærða talin sönnuð með skýlausri játningu hans.

Dæmd viðurlög: 2 mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 800.000, vararefsing 3 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, og við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 1. gr. laga nr. 42/1995, og 2. mgr. 24. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 90/1990. Einnig við 25. gr., sbr. 2. tl. b-liðar 2. gr. og 18. gr. laga nr. 51/1968 um bókhald, sbr. nú 1., 2. og 5. tl. 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995 um breytingu á þeim lögum. Háttsemi ákærða þótti einnig varða við 1. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann hafði innheimt í nafni einkafyrirtækis síns á árunum 1994 og 1995, samtals kr. 509.125.

Héraðsdómur Reykjavíkur 24. nóvember 1998, mál nr. 640/1998:

Sannað taldist, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem greindi í ákæru.

Dæmd viðurlög: Fésekt kr. 800.000, skilorðsbundin.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A og B.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærðu, B sem framkvæmdastjóra og stjórnarformanni og A sem stjórnarmanni X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur hafði verið í nafni hlutafélagsins á árunum 1993 og 1994, samtals kr. 6.155.813.

Héraðsdómur Reykjaness 20. nóvember 1998, mál nr. S-663/1998:

Talið var sannað, með afdráttarlausum játningum ákærðu, að þeir hefði gerst sekir um þá háttsemi sem greindi í ákæru.

Dæmd viðurlög: Hvor ákærðu dæmdur í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 1.200.000 kr. sektar, vararefsing 3 mánaða fangelsi fyrir hvorn um sig.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann hafði innheimt í sjálfstæðri starfsemi sinni á árunum 1990, 1991, 1992, 1993 og 1994, samtals kr. 5.682.386. Brot gegn lögum um tekju- og eignarskatt með því að hafa vanrækt að telja fram til skatts tekjur sem hann hafði af útseldri þjónustu sinni á árunum 1992, 1993 og 1994 sem námu kr. 19.764.125 og honum bar að greiða af tekjuskatt og útsvar og að hafa með þessari háttsemi komist hjá greiðslu tekjuskatts og útsvars af greindum tekjum, samtals kr. 3.967.234. Bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að halda lögboðið bókhald og gera ársreikninga vegna rekstrar síns á árunum 1990, 1991, 1992, 1993 og 1994.

Héraðsdómur Reykjavíkur 3. nóvember 1998, mál nr. S-961/1998:

Talið sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 5.000.000, vararefsing 10 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995. Einnig við 1. mgr. sbr. 6. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt, sjá 2. mgr. 107. gr. sömu laga, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995 og sbr. 2. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1989 um tekjustofna sveitarfélaga, sjá 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, og við 25. gr., sbr. 2. tl. B-liðar 2. gr. og 18 gr. laga nr. 51/1968 um bókhald, sbr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sjá 1., 2. og 5. tl. 1. mgr. 37., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995 um breyting á þeim lögum, sbr. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann hafði innheimt í sjálfstæðri starfsemi sinni á árunum 1992 og 1994, samtals að fjárhæð kr. 429.628. Einnig bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að halda lögboðið bókhald og semja ársreikninga á árunum 1990, 1991, 1992, 1993 og 1994.

Héraðsdómur Reykjavíkur 3. nóvember 1998, mál nr. 960/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í kjölfar játningar ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 250.000, vararefsing 40 daga fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 25. gr., sbr. 2. tl. B-liðar 2. gr. og 18. gr. laga nr. 51/1968 um bókhald, sbr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sjá 1., 2. og 5. tl. 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995 um breytingu á þeim lögum, sbr. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök stórfelld brot á lögum um virðisaukaskatt með því að hafa á árunum 1992, 1993 og 1994 vantalið skattskylda veltu í einkarekstri sínum um a.m.k. kr. 15.309.996 og þannig komist hjá að greiða virðisaukaskatt að fjárhæð kr. 3.377.151.

Úrskurður héraðsdóms Reykjavíkur 3. febrúar 1998, mál nr. S-508/1997:

Verjandi ákærða krafðist frávísunar á þeim grundvelli að ákvörðun opinberra gjalda ákærða, þar á meðal ákvörðun virðisaukaskatts, fyrir það tímabil sem ákært var vegna hefði ekki farið fram. Ákæra í málinu hafi hins vegar verið grundvölluð á því að virðisaukaskattur ákærða hefði verið vanframtalinn. Verjandinn taldi að skattkrafa þyrfti að liggja fyrir áður en ákært væri. Dómurinn féllst ekki á það með ákærða að endurákvörðun skatts þyrfti að liggja fyrir áður en mál yrði tekið til refsimeðferðar og hafnaði frávísunarkröfu hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur 2. nóvember 1998, mál nr. S-508/1998:

Ákærði var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins þar sem vafi þótti vera um einstaka þætti málsins, þá sem lágu til grundvallar áætlun meðalálagningar, rýrnunar birgða og um innkaup ákærða.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðri starfsemi sinni á árunum 1992, 1993 og 1994, samtals kr. 5.492.733.

Héraðsdómur Reykjaness 19. október 1998, mál nr. S-293/1998:

Sannað þótti, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru.

Dæmd viðurlög: 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 2.000.000, vararefsing 4 mánaða fangelsi.

Brotin talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í hans nafni á árunum 1993 og 1994, samtals kr. 1.763.598. Einnig brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna hans á árunum 1992, 1993 og 1994, samtals kr. 373.425. Þá voru honum gefin að sök brot gegn lögum um bókhald og lögum um ársreikninga með því að hafa látið undir höfuð leggjast að halda lögboðið bókhald og gera ársreikninga vegna rekstrar síns á árunum 1992, 1993 og 1994.

Héraðsdómur Reykjavíkur 5. október 1998, mál nr. S-772/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 900.000, vararefsing 80 daga fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995. Einnig við 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 25. gr. laga nr. 51/1968 um bókhald, sbr. 1., 2. og 5. tl. 1. mgr. 37, sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995 um breyting á þeim lögum sbr. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995 og 1. tl. 1. mgr. 83. gr., sbr. 82. gr. laga nr. 144/1994, sbr. 3. gr. laga nr. 37/1995 um breyting á þeim lögum, sbr. 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann hafði innheimt á árunum 1994 og 1995, samtals kr. 5.208.689.

Héraðsdómur Vestfjarða 30. september 1998, mál nr. S-46/1998:

Talið sannað að ákærði hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök.

Dæmd viðurlög: Fésekt kr. 2.000.000, vararefsing 4 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur hafði verið í nafni félagsins á árunum 1991 og 1992, samtals kr. 10.433.601. Einnig brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á kr. 1.174.458 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins á árunum 1991 og 1992.

Héraðsdómur Suðurlands 18. september 1998, mál nr. S-24/1998:

Ákærði taldist hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um brot á lögum um virðisaukaskatt þar sem sök taldist fyrnd.

Dæmd viðurlög: Ákvörðun refsingar frestað í 2 ár þar sem ákærði hafði ekki áður sætt refsingu svo kunnugt væri og langur tími var liðinn frá því ákærði, sem síður en svo taldist hafa hindrað rannsókn málsins, framdi brot sín.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sjá 2. mgr. 30. gr. sömu laga, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann hafði innheimt á árunum 1992, 1993, 1994 og 1995, samtals kr. 1.156.966.

Héraðsdómur Suðurlands 7. ágúst 1998, mál nr. 30/1998:

Sannað taldist, með játningu ákærða, að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru.

Dæmd viðurlög: 2 mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 900.000, vararefsing 3 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra og stjórnarformanni X hf., voru gefin að sök brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á kr. 2.936.516 sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins á árunum 1991, 1992, 1993 og 1994.

Héraðsdómur Reykjavíkur 4. ágúst 1998, mál nr. S- 638/1998:

Sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem greindi í ákæru.

Dæmd viðurlög: 60 daga fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 1.000.000, vararefsing 3 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987, sjá 2. mgr. 30. gr. sömu laga, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og . mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem stjórnarformanni og framkvæmdastjóra X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur hafði verið í nafni félagsins á árunum 1992 og 1993, samtals kr. 2.696.570. Einnig brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á kr. 942.039 sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins á árunum 1992 og 1993.

Héraðsdómur Suðurlands 10. júlí 1998, mál nr. S- 40/1998:

Ákærði sakfelldur fyrir þau brot sem honum voru gefin að sök í ákæru.

Dæmd viðurlög: Fésekt kr. 600.000, vararefsing 60 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, og við 1. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem stjórnarformanni og framkvæmdastjóra X ehf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni félagsins á árunum 1994 og 1995, samtals kr. 2.039.089.

Héraðsdómur Reykjavíkur 19. júní 1998, mál nr. Sö547/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í kjölfar játningar ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 300.000, vararefsing 45 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök brot á lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann innheimti í sjálfstæðum rekstri sínum á árunum 1993, 1994 og 1995, samtals kr. 3.284.933, og brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa við útborgun launa í sjálfstæðum rekstri á árunum 1993 og 1994 ekki staðið skil á kr. 162.947 sem hann hafði haldið eftir af launum starfsmanna sinna.

Héraðsdómur Reykjavíkur 18. júní 1998, mál nr. 551/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 850.000, vararefsing 60 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 1., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sjá 2. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra og stjórnarformanni X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa á árunum 1990, 1991 og 1992 afhent innheimtumanni ríkissjóðs rangar virðisaukaskattsskýrslur þar sem skattskyld velta félagsins var vantalin um a.m.k. kr. 7.863.633 sem varð til þess að vangreiddur virðisaukaskattur varð kr. 753.395. Honum voru einnig gefnar að sök verulegar rangfærslur og undandráttur við virðisaukaskattsskil einkafyrirtækis síns Y á árunum 1992, 1993 og 1994 með því að vantelja virðisaukaskattsskylda veltu um a.m.k. kr. 11.903.665 sem varð til þess að vangreiddur virðisaukaskattur nam kr. 2.296.225. Hinn 28. september greiddi ákærði kr. 3.142.338 vegna vangreidds virðisaukaskatts áranna 1992, 1993 og 1994. Ákærða voru ennfremur gefin að sök brot á lögum um tekjuskatt og eignarskatt og lögum um tekjustofna sveitarfélaga með verulegum rangfærslum í skattframtölum sínum á árunum 1993 og 1994 þar sem hann vantaldi tekjur af einkarekstri sínum á árunum 1992 og 1993 um a.m.k. kr. 8.259.574 er leiddi til þess að álagður tekjuskattur og útsvar ákærða urðu kr. 3.059.977 lægri en vera átti.

Héraðsdómur Reykjavíkur 22. maí 1998, mál nr. S- 217/1997:

Talið sannað að ákærði hafi framið þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru, þó þannig að aðeins var talið sannað að hann hefði afhent rangar virðisaukaskattsskýrslur fyrir tímabilið frá mars 1991 til febrúar 1992, því hafi vangreiddur virðisaukaskattur verið 368.618 kr.(rétt upphæð er 368.661 kr.) en ekki 753.395 kr.

Dæmd viðurlög: 3 mánaða varðhald, skilorðsbundið. Fésekt kr. 1.500.000, vararefsing 3 mánaða varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1996 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 107. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt nr. 75/1981, sjá 1. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. og 24. gr. laga nr. 91/1989 og laga nr. 90/1990 um tekjustofna sveitarfélaga, sjá 22. gr. laga nr. 4/

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa gefið rangar upplýsingar um virðisaukaskattsskylda sölu vöru og þjónustu sem fram fór í starfsemi einkafirma ákærða, X, og er skv. 24 reikningum sem gefnir voru út í nafni X á árunum 1991, 1992, 1993 og 1994 og að hafa ekki staðið skil á innheimtum virðisaukaskatti skv. þeim reikningum, samtals kr. 1.076.369. Einnig brot gegn lögum um tekjuskatt og eignarskatt, lögum um tekjustofna sveitarfélaga og almennum hegningarlögum með því að hafa ekki tekjufært í bókhaldi X tekjur skv. fyrrnefndum sölureikningum og hafa því rangfært bókhald X þannig að vantaldar voru tekjur upp á samtals kr. 4.564.700 auk þess að hafa rangfært skattframtöl sín um sömu upphæð sem honum bar að greiða af tekjuskatt og útsvar og hafa komið sér þannig undan greiðslu tekjuskatts og útsvars, að fjárhæð kr. 1.826.221.

Héraðsdómur Reykjavíkur 13. maí 1998, mál nr. S- 211/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 300.000, vararefsing 45 daga varðhald.

Brotin talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40 gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt, sjá 1. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. og 24. gr. laga nr. 91/1989 um tekjustofna sveitarfélaga, sjá 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995 og 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á innheimtum virðisaukaskatti í nafni félagsins á árinu 1992, samtals kr. 581.910. Einnig brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á kr. 1.311.144 sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins á árinu 1992.

Héraðsdómur Vestfjarða 13. maí 1998, mál nr. S- 2/1998:

Talið sannað að ákærði hefði framið þau brot sem honum voru gefin að sök í ákæru.

Dæmd viðurlög: 2 mánaða varðhald, skilorðsbundið. Fésekt kr. 400.000, vararefsing 60 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 1.mgr., sbr. 7. mgr. 30 gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sjá 2. mgr. 30 gr. sömu laga, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1996 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995. Allt sbr. 2. gr. almennra hegningarlaga.

 

 

Ákæruvaldið gegn A og B.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærðu, A sem framkvæmdastjóra og sameiganda að X sf. og B sem sameiganda, voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að standa ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti á árunum 1993 og 1994 að fjárhæð kr. 908.561 og brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda árið 1994 að fjárhæð kr. 427.545.

Héraðsdómur Vesturlands 13. maí 1998, mál nr. S- 7/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærðu.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 100.000 hvor, vararefsing 20 daga fangelsi hvor.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á innheimtum virðisaukaskatti á árunum 1993 til 1995, kr. 1.629.071

Héraðsdómur Vesturlands 21. apríl 1998, mál nr. S-6/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 1.500.000, vararefsing 5 mánaða varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

 

 

Ákæruvaldið gegn A og B.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærðu, A sem framkvæmdastjóra X hf. frá desember 1993 til september 1994 og B frá þeim tíma til gjaldþrots félagsins, voru gefin að sök brot á skattalögum. A fyrir brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa hvorki afhent staðgreiðsluskilagreinar né staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á kr. 1.053.132 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins á tímabilinu febrúar til ágúst 1994 og B á kr. 994.007 á tímabilinu september 1994 til febrúar 1995. A fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti, að fjárhæð kr. 206.126 sem félagið hafði innheimt í mars-apríl 1994 og hvorki skilað skýrslu fyrir félagið né innheimtum virðisaukaskatti fyrir maí-júní 1994, kr. 251.205 og B fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem félagið hafði innheimt frá júlí 1994 til febrúar 1995, samtals kr. 1.579.347.

Héraðsdómur Vesturlands 25. mars 1998, mál nr. S-58/1997:

Ákærðu töldust sek um þá háttsemi sem lýst var í ákæru.

Dæmd viðurlög: Ákærðu hvort um sig dæmt til greiðslu 700.000 kr. sektar, vararefsing 70 daga fangelsi.

Brot talin varða við 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995, sbr. áður 1. mgr. 30. g. laga nr. 45/1987, og við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, sbr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærðu var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkafirma hennar, X, í nóvember og desember 1994, samtals kr.785.092. Gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á kr. 213.710 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna X á árunum 1994 og 1995. Henni var einnig gefinn fjárdráttur að sök.

Héraðsdómur Reykjavíkur 20. mars 1998, mál nr. S-210/1998:

Sannað þótti, með skýlausri játningu ákærðu, að hún hefði framið þau brot sem ákært var vegna.

Dæmd viðurlög: Ákvörðun refsingar frestað með hliðsjón af högum ákærðu.

Skattalagabrotin talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, og 1. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 1. gr. laga nr.39/1995.

. 19/1940.

 

 

Ákæruvaldið gegn A, B og C.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærðu A og B, A sem stjórnarformanni og B sem stjórnarmanni X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni félagsins á árunum 1993, 1994 og 1995, samtals kr. 345.913. Einnig brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins á sama árabili, samtals kr. 534.073. Þá var ákærðu C og B, C sem framkvæmdastjóra og stjórnarformanni og B sem stjórnarmanni Y hf., gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni félagsins á árunum 1994 og 1995, samtals kr. 461.259. Einnig brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins á árunum 1993, 1994 og 1995, samtals kr. 523.122.

Héraðsdómur Norðurlands vestra 18. mars 1998, mál nr. S-6/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærðu.

Ákvörðuð viðurlög: A dæmdur til greiðslu 220.000 kr. sektar, vararefsing 35 daga varðhald. B til greiðslu 450.000 kr. sektar, vararefsing 55 daga varðhald. C til greiðslu 250.000 kr. sektar, vararefsing 40 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, og við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr 1. gr. laga nr. 39/

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem hann hafði innheimt frá byrjun febrúar til loka október árið 1990 og á árunum 1991, 1992, 1993 og 1994, samtals kr. 2.448.219.

Héraðsdómur Reykjavíkur 27. febrúar 1998, mál nr. S-88/1998:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 400.000, vararefsing 50 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem stjórnarformanni og framkvæmdastjóra X hf., voru gefin að sök brot á skattalögum framin í rekstri félagsins á árunum 1993 og 1994. Gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á kr. 2.223.642 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins. Gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 4.750.752 sem félagið hafði innheimt.

Héraðsdómur Reykjaness 19. febrúar 1998, mál nr. S-332/1996:

Sannað þótti að ákærði hefði gerst sekur um þau brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda sem greindi í ákæru. Þeim þætti ákærunnar sem sneri að meintum brotum gegn lögum um virðisaukaskatt var hins vegar vísað frá þar sem ekki þótti unnt að útiloka að vangreiddur virðisaukaskattur hefði numið mun lægri fjárhæðum en ákært var fyrir. Rannsókn og reifun málsins að þessu leyti þótti vera svo áfátt að ekki yrði felldur dómur á sakarefnið.

Dæmd viðurlög: Fésekt kr. 1.000.000, vararefsing 2 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr. 30. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987.