Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra X ehf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa vanrækt að standa ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem félagið innheimti í rekstri sínum á árunum 1992, 1993 og 1994, að fjárhæð kr. 6.926.205.

Héraðsdómur Reykjaness 19. desember 1996, mál nr. S-553/1996:

Sannað þótti með skýlausri játningu ákærða að hann hefði framið þau brot sem honum voru gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 3 mánaða fangelsi, allt skilorðsbundið. Fésekt kr. 3.000.000, vararefsing 6 mánaða fangelsi.

Brotin talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra X hf., var gefið að sök að hafa á árunum 1990 til 1993 ekki staðið skil á virðisaukaskatti að fjárhæð a.m.k. kr. 3.144.177, sem innheimtur var samkvæmt sölureikningum félagsins á sama tíma og ákærði afhenti skattstjóranum í Reykjavík 15 virðisaukaskattsskýrslur þar sem skattskyld velta félagsins öll árin 1990 og 1991, fyrstu tvö uppgjörstímabil ársins 1992 og uppgjörstímabilið september-október 1993, var ranglega talin engin, og þegar félagið var ekki á skrá yfir virðisaukaskattsskylda aðila frá maí 1992 til september 1993.

Héraðsdómur Reykjavíkur 24. október 1996, mál nr. S-352/1996:

Sannað þótti að ákærði hefði framið þau brot sem honum voru gefin að sök í ákæru, þó þannig að heildarfjárhæð skilaskylds virðisaukaskatts var talin nema kr. 2.964.150.

Dæmd viðurlög: 3 mánaða varðhald, skilorðsbundið. Fésekt kr. 1.400.000, vararefsing 3 mánaða varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra X hf. og Y hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa við staðgreiðsluskil á opinberum gjöldum sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félaganna á rekstrarárinu 1993 afhent rangar skilagreinar um afdregna staðgreiðslu, sem sýndu kr. 5.031.985 lægri fjárhæð en raunverulegt var, og jafnframt með þeim hætti frestað því að gera fullnaðarskil á verulegum hluta staðgreiðslufjárins. Fullnaðarskil áttu sér hins vegar stað síðar.

Héraðsdómur Suðurlands 18. október 1996, mál nr. S-77/1996:

Talið sannað að ákærði hefði gerst sekur um þá háttsemi sem greindi í ákæru.

Dæmd viðurlög: 3 mánaða varðhald, skilorðsbundið í 2 ár. Fésekt kr. 1.000.000, vararefsing 3 mánaða varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. alm. hgl. nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 2. gr. sömu laga.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærðu var gefið að sök að hafa á árunum 1992 til 1995 vantalið skattskylda veltu í sjálfstæðri starfsemi sinni um a.m.k. kr. 2.372.449 og ekki greitt virðisaukaskatt sem hún innheimti á árunum 1990 og 1992 til 1995, samtals að fjárhæð kr. 785.292.

Héraðsdómur Reykjavíkur 11. október 1996, mál nr. S-613/1996:

Sannað þótti, með skýlausri játningu ákærðu, að hún hefði gerst sek um þá háttsemi sem henni var gefin að sök.

Dæmd viðurlög: Ákærðu var ekki gerð sérstök refsing, þar sem brotin voru framin áður en dómur á hendur ákærðu gekk, þar sem hún var dæmd í 18 mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Bar að dæma henni hegningarauka skv. 78. gr. alm. hgl., en það var ekki gert, þar sem ætla mátti að skattalagabrotin hefðu ekki orkað til þyngingar þeim dómi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra X hf. síðar Y hf., voru gefin að sök brot á lögum um virðisaukaskatt með því að hafa á árinu 1994 vanrækt að standa ríkissjóði skil á virðisaukaskatti kr. 319.060 sem innheimtur var skv. sölureikningum félagsins. Brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa á árunum 1993 og 1994 vanrækt að standa ríkissjóði skil á kr. 1.643.850 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins. Þá var honum gefinn fjárdráttur að sök.

Héraðsdómur Reykjavíkur 12. september 1996, mál nr. S-439/1996:

Ákærði var talinn hafa gerst sekur um þau skattalagabrot sem greindi í ákæru. Hann var einnig sakfelldur fyrir fjárdrátt.

Dæmd viðurlög: 5 mánaða fangelsi, þar af 4 mánuðir skilorðsbundnir. Fésekt kr. 1.000.000, vararefsing 4 mánaða fangelsi.

Skattalagabrotin talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, sbr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Einnig 2. mgr. 30. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa á árunum 1992 til 1995 ekki staðið skil á innheimtum virðisaukaskatti, samtals kr. 892.222.

Héraðsdómur Reykjavíkur 5. september 1996, mál nr. S-587/1996:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 450.000, vararefsing 55 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 60/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 um breyting á þeim lögum.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa vanrækt að standa skil á virðisaukaskattsskýrslum og greiða til ríkissjóðs virðisaukaskatt að fjárhæð kr. 611.415. Brot framin á árunum 1991, 1992 og 1993.

Héraðsdómur Reykjavíkur 4. september 1996, mál nr. S-593/1996:

Sekt ákærða talin sönnuð með skýlausri játningu hans.

Dæmd viðurlög: 6 mánaða fangelsi - hegningarauki.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. alm. hgl. nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra og stjórnarformanni X hf., voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa afhent skattyfirvöldum rangar skýrslur um virðisaukaskatt sem félagið hafði innheimt á árinu 1993 og ekki afhent skýrslur vegna ársins 1994 á lögmæltum tíma og þannig ekki staðið ríkissjóði skil á innheimtum virðisaukaskatti, samtals kr. 7.276.768. Ennfremur brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa afhent skattyfirvöldum í ágúst 1993 og apríl 1994, rangar skilagreinar um launagreiðslur og afdregna staðgreiðslu á árinu 1993 og ekki afhent á lögmæltum tíma skilagreinar vegna launagreiðslna 1994 og þannig ekki staðið ríkissjóði skil á kr. 3.878.548 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur 9. júlí 1996, mál nr. S-445/1996:

Dómurinn taldi sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði framið þau brot sem honum voru gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 6 mánaða varðhald, skilorðsbundið. Fésekt kr. 5.500.000, vararefsing 10 mánaða varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. alm. hgl. nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995, og við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995, og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa á árunum 1992 til 1994 vanrækt að standa ríkissjóði skil á virðisaukaskatti, kr. 2.320.126, sem hann hafði innheimt í sjálfstæðum rekstri sínum. Honum voru einnig gefin að sök brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa á árunum 1993 og 1994 vanrækt að standa ríkissjóði skil á kr. 846.177 sem hann hélt eftir af launum starfsmanna sinna. Ákærða var ennfremur gefinn fjárdráttur að sök.

Héraðsdómur Austurlands 26. júní 1996, mál nr. S-1436/1995:

Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði gerst sekur um þá háttsemi sem greindi í ákæru.

Dæmd viðurlög: 5 mánaða fangelsi, allt skilorðsbundið. Fésekt kr. 1.200.000, vararefsing 3 mánaða fangelsi.

Skattalagabrotin talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr.50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 30. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987, sjá 2. gr. laga nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem starfandi framkvæmdastjóra X hf., voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með rangfærslum við skattskil með því að vantelja kr. 9.554.611 af virðisaukaskattsskyldri veltu félagsins árin 1992 og 1993 og standa innheimtumanni ríkissjóðs ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 1.762.741. Einnig brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki við útborgun launa á árinu 1992 staðið ríkissjóði skil á kr. 317.636 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins. Ákærða var ennfremur gefið að sök skjalafals, fjárdráttur og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Suðurlands 4. júní 1996, mál nr. S-13/1996:

Talið sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 7 mánaða fangelsi, þar af 4 mánuðir skilorðsbundnir. Fésekt kr. 900.000, vararefsing 3 mánaða fangelsi.

Skattalagabrotin talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 1. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem stjórnarformanni og stjórnanda X hf., voru gefin að sök brot framin í rekstri félagsins á árunum 1985 til 1988 fólgin í því að hafa í blekkingarskyni ranglega gjaldfært í bókhaldi og ársreikningum félagsins fjárhæðir án þess að um væri að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað og þannig dregið undan álagningu tekjuskatts a.m.k. kr. 3.922.061 sem leiddi til lægri tekjuskattsálagningar en vera átti um a.m.k. kr. 1.945.901. Ákærða var einnig gefið að sök að hafa brotið gegn lögum nr. 32/1978 um hlutafélög.

Héraðsdómur Reykjavíkur 31. maí 1996, mál nr. S-297/1996:

Dómurinn taldi sekt ákærða sannaða að hluta en hann var hins vegar sýknaður þar sem sakir voru taldar fyrndar.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki talið fram kr. 4.748.770 af virðisaukaskattsskyldri veltu ársins 1992 og ekki staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti innheimtum á árunum 1990 til 1992, samtals að fjárhæð kr. 2.299.788, að frádregnum innskatti. Brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki við útborgun launa á árunum 1990 til 1992, staðið ríkissjóði skil á kr. 800.668 sem hann hafði haldið eftir af launum starfsmanna sinna til staðgreiðslu opinberra gjalda. Ákærða var ennfremur gefinn fjárdráttur að sök.

Héraðsdómur Suðurlands 24. maí 1996, mál nr. S-36/1996:

Sannað þótti, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði framið þau brot sem hann var ákærður fyrir.

Dæmd viðurlög: 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 1.400.000, vararefsing 120 daga varðhald.

Skattalagabrotin talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og við 1. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sjá 2. gr. laga nr. 42/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 612.728, samkvæmt 15 reikningum, samtals að fjárhæð kr. 3.110.591, sem ákærði hafði á tímabilinu 1. júlí til og með 20. desember 1991 gefið út í eigin nafni, og að hafa í júlí sama ár tilkynnt sig af virðisaukaskattsskrá.

Héraðsdómur Norðurlands eystra 30. apríl 1996, mál nr. S-49/1996:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 450.000, vararefsing 60 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra og aðalmanni í stjórn X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á kr. 6.516.774 sem hafði verið haldið eftir af launum starfsmanna félagsins á árunum 1993 og 1994 til staðgreiðslu opinberra gjalda.

Héraðsdómur Reykjaness 22. apríl 1996, mál nr. S-150/1996:

Talið sannað að ákærði hefði framið þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru.

Dæmd viðurlög: Fésekt kr. 2.950.000, vararefsing 6 mánaða varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 7. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa hvorki afhent virðisaukaskattsskýrslur vegna virðisaukaskattsskyldrar veltu að fjárhæð kr. 9.949.078 á árunum 1991 til 1995, né staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti af þeirri veltu, samtals að fjárhæð kr. 2.437.543.

Héraðsdómur Reykjavíkur 12. apríl 1996, mál nr. S-373/1996:

Dómurinn taldi sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði framið þau brot sem honum voru gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 3 mánaða varðhald, skilorðsbundið. Fésekt kr. 1.200.000, vararefsing 3 mánaða varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa ekki staðið innheimtumönnum ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti innheimtum á árunum 1990 til 1994, að fjárhæð kr. 1.192.218.

Héraðsdómur Suðurlands 29. mars 1996, mál nr. S-12/1996:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 600.000, vararefsing 60 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa á árinu 1992 vanrækt að tilkynna skattyfirvöldum um virðisaukaskattsskyldan sjálfstæðan atvinnurekstur sinn, vanrækt að halda tilskilið bókhald í þeim rekstri, innheimt virðisaukaskatt í nafni einkafyrirtækis síns, þar sem ranglega var tilgreint virðisaukaskattsnúmer annars fyrirtækis, og að hafa hvorki afhent virðisaukaskattsskýrslur né staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á innheimtum virðisaukaskatti, a.m.k. kr. 568.447.

Héraðsdómur Reykjavíkur 4. mars 1996, mál nr. S-166/1996:

Dómurinn taldi sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði gerst sekur um þau brot sem honum voru gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 45 daga varðhald, skilorðsbundið. Fésekt kr. 300.000, vararefsing 45 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. og 2. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sjá 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða var gefið að sök að hafa, sem starfandi framkvæmdastjóri X hf., á árunum 1990 til og með 1993 brotið gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa útbúið og afhent skattyfirvöldum virðisaukaskattsskýrslur, þar sem skattskyld velta félagsins var vantalin um samtals kr. 27.891.108 og með þeim hætti komist hjá að greiða ríkissjóði kr. 6.833.323 í virðisaukaskatt.

Héraðsdómur Reykjavíkur 29. febrúar 1996, mál nr. S-49/1996:

Dómurinn taldi sannað, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði framið þá háttsemi sem ákært var út af.

Dæmd viðurlög: 15 mánaða fangelsi, óskilorðsbundið. Fésekt kr. 500.000, vararefsing 60 daga fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða gefið að sök að hafa í sjálfstæðri starfsemi sinni á árunum 1992 og 1993 vantalið skattskylda veltu á virðisaukaskattsskýrslum og ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti, samtals að fjárhæð kr. 497.996.

Héraðsdómur Reykjavíkur 28. febrúar 1996, mál nr. S-57/1996:

Málinu lokið með sektargerð dómara í framhaldi af játningu ákærða.

Ákvörðuð viðurlög: Fésekt kr. 250.000, vararefsing 40 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A og B.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærðu, sem eigendum og framkvæmdastjórum X sf., voru gefin að sök brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið skil á kr. 3.940.592 sem hafði verið haldið eftir af launum starfsmanna félagsins á árunum 1992, 1993 og 1994 til staðgreiðslu opinberra gjalda. Ennfremur voru þeim gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem félagið hafði innheimt á árinu 1994, samtals að fjárhæð kr. 1.299.505.

Héraðsdómur Reykjaness 27. febrúar 1996, mál nr. S-3/1996:

Sök ákærðu þótti sönnuð með skýlausri játningu þeirra.

Dæmd viðurlög: Hvor um sig látinn sæta fangelsi í 2 mánuði, skilorðsbundið. Hvor um sig dæmdur til greiðslu fésektar kr. 1.300.000, vararefsing 3 mánaða fangelsi hvor um sig.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995, og við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra og stjórnarformanni X hf., voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem félagið hafði innheimt á árunum 1990 til og með 1994, samtals að fjárhæð kr. 1.424.535.

Héraðsdómur Norðurlands eystra 23. janúar 1996, mál nr. S-1/1996:

Sök ákærða þótti sönnuð með skýlausri játningu hans.

Dæmd viðurlög: Fésekt kr. 500.000, vararefsing 60 daga varðhald.

Brot talin varða við 1. mgr., sbr. 6. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 39/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem framkvæmdastjóra X hf., voru gefin að sök brot á lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem félagið hafði innheimt á árunum 1992 og 1993, samtals kr. 965.224. Einnig brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á kr. 1.633.177 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins frá ágúst 1992 til og með apríl 1993. Þá var ákærða gefinn fjárdráttur að sök.

Héraðsdómur Reykjaness 16. janúar 1996, mál nr. S-579/1996:

Sannað þótti, með skýlausri játningu ákærða, að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 2 mánaða fangelsi, allt skilorðsbundið. Fésekt kr. 1.300.000, vararefsing 3 mánaða varðhald.

Skattalagabrot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr., sbr. 6. mgr. 30 gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sjá 2. gr. laga nr. 42/1995.

 

 

Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða, sem stjórnarformanni og framkvæmdastjóra X hf., var gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa við útborgun launa á tímabilinu febrúar til og með desember 1992 ekki staðið ríkissjóði skil á kr. 4.265.045 sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félagsins. Einnig brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem félagið hafði innheimt frá maí til og með desember 1992, samtals kr. 3.116.566. Þá var ákærða gefinn fjárdráttur að sök.

Héraðsdómur Reykjaness 10. janúar 1996, mál nr. S-549/1995:

Dómurinn taldi, með skýlausri játningu ákærða, sannað að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök.

Dæmd viðurlög: 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið. Fésekt kr. 3.600.000, vararefsing 6 mánaða fangelsi.

Skattalagabrotin talin varða við 1. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995, og við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995.