|
fyrir skattrannsóknarstjóra ríkisins
|
||||
Skattrannsóknarstjóri ríkisins er ábyrgur gagnvart fjármálaráđherra fyrir rekstri embćttis skattrannsóknarstjóra ríkisins. Honum ber ađ framfylgja lögum og stjórnvaldsfyrirmćlum sem um stofnunina gilda og stýra starfi hennar í samrćmi viđ erindisbréf ţetta. Embćttiđ starfar samkvćmt lögum nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt međ síđari breytingum, reglugerđ nr. 361/1995 um skattrannsóknir og málsmeđferđ hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins, lögum nr. 50/1988 um virđisaukaskatt međ áorđnum breytingum, lögum nr. 45/1987 um stađgreiđslu opinberra gjalda međ áorđnum breytingum, lögum nr. 113/1990 um tryggingagjald međ áorđnum breytingum, lögum nr. 145/1994 um bókhald međ áorđnum breytingum og lögum nr. 144/1994 um ársreikninga međ áorđnum breytingum. Skattrannsóknarstjóri ríkisins skal einnig fara í embćttissýslan sinni samkvćmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993, og ađ öđrum lögum og reglugerđum sem snerta kunna embćttiđ eđa einstaka verkefni ţess eftir ţví sem viđ getur átt og ađstćđur ţykja leyfa hverju sinni. Meginhlutverk skattrannsóknarstjóra er ađ rannsaka og upplýsa brot á framangreindum lögum međ ţađ ađ markmiđi ađ draga úr skattsvikum. Verkefni embćttis skattrannsóknarstjóra ríkisins er ađ rannsaka mál sem skattstjórar og ríkisskattstjóri vísa til hans auk rannsókna ađ eigin frumkvćđi. Jafnframt skal skattrannsóknarstjóri ríkisins koma, af hálfu hins opinbera, fyrir yfirskattanefnd viđ međferđ sektarmála , semja kröfugerđ í sektarmálum og reka máliđ fyrir nefndinni, ţ.m.t. međ munnlegum málflutningi ef slíkt er ákveđiđ. Ţá skal skattrannsóknarstjóri ríkisins annast undirbúning refsimeđferđar í alvarlegri skattsvikamálum međ vísun til opinberrar rannsóknar. Skattrannsóknarstjóri og fjármálaráđuneytiđ vinna sameiginlega ađ langtímaáćtlun til fimm ára í senn, ţar sem stefnumótun fyrir embćttiđ og ofangreind markmiđ eru nánar útfćrđ og skilgreind. Áćtlunina má endurskođa eftir ţörfum. Embćttiđ skal halda til haga upplýsingum um ađgerđir í einstökum rannsóknarmálum svo sem endurákvarđanir opinberra gjalda, viđurlagaákvarđanir, bókađar skýrslutökur og ađsend og útsend bréf til stofnunarinnar. Fjármálaráđuneytiđ skal ćtíđ geta kynnt sér málsmeđferđ einstakra mála ţegar efni ţykir til. Skattrannsóknarstjóri ríkisins ber ábyrgđ á ađ rekstur embćttisins og rekstrar- afkoma ţess sé í samrćmi viđ fjárlög og langtímaáćtlun embćttisins og ađ fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Skattrannsóknarstjóri ríkisins skal árlega leggja fyrir fjármálaráđuneytiđ starfs- og rekstraráćtlun sem hann sendir ráđuneytinu fyrir 15. febrúar ár hvert. Ráđuneytinu ber ađ taka afstöđu til áćtlunarinnar fyrir 1. mars. Ţar skal gerđ grein fyrir hvernig helstu starfsmarkmiđum og áherslumálum yfirstandandi árs verđur náđ. Skattrannsóknarstjóri ríkisins skal fyrir 15. mars árlega leggja fram ársskýrslu sem m.a. birtir rekstrar- og efnahagsreikning liđins árs og greinargerđ um starfsemina. Erindisbréf ţetta stendur ţar til fjármálaráđherra ákveđur annađ. Skattrannsóknarstjóri getur óskađ eftir endurskođun ţessa erindisbréfs. Fjármálaráđuneytinu, 4. nóvember 1996. |
||||
ráđherra |
ráđuneytisstjóri |
|||