Forsíða
Forsíđa
 

Fréttir

10.12.2008
Hérađsdómur Vesturlands, 24. nóvember 2008, í máli nr. S-290/2007:
Ákćruvaldiđ gegn A og B.

Verknađarlýsing í ákćru: ákćrđu A, sem stjórnarmanni međ prókúruumbođ og ákćrđa B, sem starfandi framkvćmdastjóra einkahlutafélagsins X, var gefiđ ađ sök ađ hafa eigi afhent á lögmćltum tíma virđisaukaskattsskýrslur og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á virđisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins uppgjörstímabilin mars – apríl rekstraráriđ 2004 til og međ september – október rekstraráriđ 2005, samtals ađ fjárhćđ kr. 15.476.851. Ţá var ákćrđu gefiđ ađ sök ađ hafa, í störfum sínum fyrir einkahlutafélagiđ, eigi afhent á lögmćltum tíma skilagreinar stađgreiđslu opinberra gjalda og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á stađgreiđslu opinberra gjalda sem haldiđ var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiđslutímabilanna janúar til og međ október rekstraráriđ 2005, samtals ađ fjárhćđ kr. 4.468.202.

Ţá var ákćrđu A, sem stjórnarmanni međ prókúruumbođ og ákćrđa B, sem starfandi framkvćmdastjóra einkahlutafélagsins Z, gefiđ ađ sök ađ hafa eigi afhent á lögmćltum tíma virđisaukaskattsskýrslur og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á virđisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins uppgjörstímabilin janúar – febrúar rekstraráriđ 2004 til og međ september – október rekstraráriđ 2005, samtals ađ fjárhćđ kr. 7.415.362. Ţá var ákćrđu gefiđ ađ sök ađ hafa í störfum sínum fyrir einkahlutafélagiđ, eigi afhent á lögmćltum tíma skilagreinar stađgreiđslu opinberra gjalda og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á stađgreiđslu opinberra gjalda sem haldiđ var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiđslutímabilanna janúar til og međ október rekstraráriđ 2005, samtals ađ fjárhćđ kr. 2.155.446.

Ţá var ákćrđu A, sem stjórnarmanni međ prókúruumbođ og ákćrđa B, sem starfandi framkvćmdastjóra einkahlutafélagsins X, gefiđ ađ sök ađ hafa eigi afhent á lögmćltum tíma virđisaukaskattsskýrslur vegna uppgjörstímabilanna nóvember – desember rekstraráriđ 2005, janúar – febrúar, maí – júní, júlí – ágúst og nóvember – desember rekstraráriđ 2006 og janúar – febrúar rekstraráriđ 2007 og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á virđisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins vegna sömu uppgjörstímabila, samtals ađ fjárhćđ kr. 7.284.675. Ţá voru ákćrđu gefiđ ađ sök ađ hafa, eigi stađiđ skil á skilagreinum stađgreiđslu opinberra gjalda á lögmćltum tíma vegna greiđslutímabilanna nóvember og desember rekstraráriđ 2005, janúar til og međ desember rekstraráriđ 2006, og janúar rekstraráriđ 2007 og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á stađgreiđslu opinberra gjalda sem haldiđ var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna sömu greiđslutímabila, samtals ađ fjárhćđ kr. 4.769.856.

Ţá var ákćrđu A, sem stjórnarmanni međ prókúruumbođ og ákćrđa B, sem starfandi framkvćmdastjóra einkahlutafélagsins Z, var gefiđ ađ sök ađ hafa eigi afhent á lögmćltum tíma virđisaukaskattsskýrslur vegna uppgjörstímabilanna maí – júní, júlí – ágúst og nóvember – desember rekstraráriđ 2006 og janúar – febrúar rekstraráriđ 2007 og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á virđisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins vegna sömu uppgjörstímabila, samtals ađ fjárhćđ kr. 3.778.063. Ţá var ákćrđu gefiđ ađ sök ađ hafa, eigi stađiđ skil á skilagreinum stađgreiđslu opinberra gjalda á lögmćltum tíma vegna greiđslutímabilanna febrúar til og međ desember rekstraráriđ 2006 og janúar rekstraráriđ 2007 og hafa eigi stađiđ ríkissjóđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á stađgreiđslu opinberra gjalda sem haldiđ var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna sömu greiđslutímabila, samtals ađ fjárhćđ kr. 1.289.806.

Hérađsdómur Vesturlands, 24. nóvember 2008, í máli nr. S-290/2007:

Fram kom fyrir dómi ađ ákćrđa A hefđi veriđ skráđ í fyrirsvari fyrir bćđi félögin á pappírum ţar sem ákćrđi B hefđi veriđ undir gjaldţrotaskiptum. Hún hefđi hins vegar ekkert komiđ ađ fjármálastjórnun eđa skattskilum félaganna, en ţau málefni hefđu veriđ á hendi ákćrđa B. Dómurinn taldi ađ engin ástćđa vćri til ađ véfengja ţessa frásögn sem hefđi einnig fengiđ stođ í samhljóđa vćtti innheimtumanns ríkissjóđs og ţáverandi útibússtjóra Landsbanka Íslands á Akranesi. Allt ađ einu taldi dómurinn ađsú skylda hvíldi á ákćrđu A ađ fara međ mál félaganna og annast um ađ skipulag ţeirra og starfsemi vćri jafnan í réttu og góđu horfi, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994. Ţá bar ákćrđu A ađ annast ađ nćgjanlegt eftirlit vćri haft međ fjármunum félaganna, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Í lögskiptum vegna félaganna út á viđ hefđi ákćrđa A veriđ í fyrirsvari og bar ţví refsiábyrgđ vegna ţeirra brota sem ákćrt var fyrir og framin í starfsemi félaganna. Var hún ţví sakfelld fyrir ađ hafa međ stórkostlegu hirđuleysi brotiđ gegn skyldum sínum ađ hlutast um ađ skilagreinum og virđisaukaskattsskýrslum vćri skilađ og gjöldin og skatturinn greiddur.

Ákćrđi B krafđist frávísunar viđ munnlegan flutning málsins. Karfa hans var í fyrsta lagi reist á ţví ađ ekki vćri fullt tölulegt samrćmi međ innborgunum X ehf. samkvćmt yfirlitum skattrannsóknarstjóra ríkisins fyrir tímabiliđ frá 8. mars 2006 til 22. ágúst 2007 annars vegar og fyrir tímabiliđ 15. desember 2005 til 3. október 2007 hins vegar. Dómurinn taldi ađ ţar sem tölulegt ósamrćmi milli ţessara yfirlita vćri óverulegt vćri ţessi frávísunarástćđa haldlaus. Í örđu lagi reisti ákćrđi kröfu sína á ţví ađ ekki hefđi veriđ upplýst í málinu hvađ félögin hefđu greitt í heild sinni til innheimtumanns vegna opinberra gjalda á árunum 2004 og 2005, hvorki viđ rannsókn málsins hjá skattyfirvöldum eđa lögreglu né fyrir dómi. Óskađi ákćrđi B eftir ađ ţetta yrđi upplýst. Dómurinn taldi ađ ákćrđa hefđi veriđ í lófa lagiđ ađ afla ţessara upplýsinga sjálfur ef hann teldi ţćr skipta máli fyrir vörn sína fyrir dómi. Ţá var taliđ óhćtt ađ slá ţví föstu ađ ţessar upplýsingar hefđu engu breytt um saknćmi ţeirra brota sem ákćrđu voru gefin ađ sök. Sannađ ţótti ađ ákćrđu hefđu gerst sek um ţá háttsemi sem í ákćru greindi.

Dćmd viđurlög: Ákćrđi B: 6 mánađa fangelsi, skilorđsbundiđ til tveggja ára. Fésekt kr. 21.000.000, vararefsing 6 mánađa fangelsi. Ákćrđa A: Fésekt kr. 21.000.000, vararefsing 6 mánađa fangelsi.

Brot ákćrđu voru talin varđa viđ: 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virđisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um stađgreiđslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995 og 139. gr. laga nr. 72/1998.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is