Forsíða
Forsíða
 

Fréttir

18.11.2008
Héraðsdómur Reykjavíkur, 12. nóvember 2008, í máli nr. S-1293/2008
Ákæruvaldið gegn A.
Verknaðarlýsing í ákæru: ákærða var gefið að sök, sem framkvæmdastjóra, stjórnarmanni og prókúruhafa einkahlutafélagsins X ehf., að hafa eigi staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna september – október og nóvember – desember rekstrarárið 2006 og mars – apríl til og með nóvember – desember rekstrarárið 2007, í samræmi við það sem lög áskilja, samtals að fjárhæð kr. 23.905.946. Þá var ákærða gefið að sök að hafa eigi staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, í samræmi við það sem lög áskilja, sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna, janúar, febrúar, maí til og með desember rekstrarárið 2007, samtals að fjárhæð kr. 15.676.587.

Héraðsdómur Reykjavíkur, 12. nóvember 2008, í máli nr. S-1293/2008:

Sannað þótti með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og öðrum gögnum málsins að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru greinir.

Ákærði bar fyrir sig að hann væri erlendur ríkisborgari og hefði ekki þekkt til réttarfars hér á landi. Hann hefði ekki fengið neinar leiðbeiningar við úthlutun virðisaukaskattsnúmers. Ekki var fallist á það með ákærða að hugsanleg vanþekking hans á lögum og reglum ætti að horfa til málsbóta við refsiákvörðun eða að koma ætti til refsilækkunar af þeim sökum.

Dæmd viðurlög: 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Fésekt kr. 64.000.000, vararefsing 12 mánaða fangelsi.

Brot ákærða voru talin varða við: 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005, og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is