Forsíða
Forsíða
 

Fréttir

17.9.2008
Héraðsdómur Norðurlands eystra, 6. júní 2008, í máli nr. S-72/2008
Ákæruvaldið gegn A.

Verknaðarlýsing í ákæru: ákærða var gefið að sök, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra einkahlutafélagsins X ehf., að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma virðisaukaskattsskýrslur vegna uppgjörstímabilanna frá janúar til og með apríl 2005, hafa skilað til skattyfirvalda efnislega rangri virðisaukaskattsskýrslu vegna uppgjörstímabilsins janúar – febrúar 2005 þar sem innskattur var oftalinn um kr. 637.355 og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna janúar til og með apríl 2005, samtals að fjárhæð kr. 2.441.621. Þá var ákærða gefið að sök að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma skilagreinar staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna nóvember 2004 til og með mars 2005 og júní til og með október 2005, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna sömu greiðslutímabila, samtals að fjárhæð kr. 4.009.831.

Verknaðarlýsing í ákæru: ákærða var gefið að sök, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra einkahlutafélagsins Y ehf., að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma virðisaukaskattsskýrslur vegna uppgjörstímabilanna frá september til og með desember 2005 og frá mars til og með júní og september – október 2006, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins vegna sömu uppgjörstímabila, samtals að fjárhæð kr. 5.624.688. Þá var ákærða gefið að sök að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma skilagreinar staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna október og nóvember 2005 og janúar til og með september 2006, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna október 2005 til og með september 2006, samtals að fjárhæð kr. 5.192.730.

Verknaðarlýsing í ákæru: ákærða var gefið að sök, sem framkvæmdastjóra einkahlutafélagsins Z ehf., að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma virðisaukaskattsskýrslur vegna uppgjörstímabilanna frá maí til og með október 2006, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna frá maí 2006 til og með febrúar 2007, samtals að fjárhæð kr. 4.255.517. Þá var ákærða gefið að sök að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma skilagreinar staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna júlí og ágúst 2006, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna október 2005 til og með desember 2006, samtals að fjárhæð kr. 384.745.

Héraðsdómur Norðurlands eystra, 6. júní 2008, í máli nr. S-72/2008:

Mál nr. S-97/2008 var sameinað þessu. Það höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri gegn ákærða fyrir umferðalagabrot.

Fyrir dómi leiðrétti ákæruvaldið ákæru en fram kom í töflu staðgreiðslukaflans að brot ákærða vegna einkahlutafélagsins X ehf. hefði verið vegna greiðslutímabilanna janúar og febrúar 2004 en hefði átti að vera vegna nóvember og desember 2004. Þá var í 1. tl. A kafla ákæru látinn falla brott orðin ,,hafa skilað til skattyfirvalda efnislega rangri virðisaukaskattsskýrslu vegna uppgjörstímabilsins janúar – febrúar 2005, þar sem innskattur var oftalinn um kt. 637.355” og samtala í þessum lið ákæru lækki um þá fjárhæð, þar sem hún eigi að dragast frá fjárhæð tímabilsins janúar - febrúar.

Sannað þótti með játningu ákærða fyrir dómi og öðrum gögnum málsins að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru greinir.

Ákæruvaldið reifaði við fyrirtöku málsins að nægilega hefði verið greitt inn á skuld samkvæmt þar til töldum ákæruliðum, til að beita mætti hvað þá varðaði, heimildum í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, til að fara niður úr fésektarlágmarki við ákvörðun refsingar. Tekið var tillit til þess við ákvörðun refsingar.

Dæmd viðurlög: 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Fésekt kr. 32.500.000, vararefsing 9 mánaða fangelsi.

Brot ákærða voru talin varða við: 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005, og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is