Forsíða
Forsíða
 

Fréttir

9.4.2008
Héraðsdómur Reykjavíkur, 9. apríl 2008, í máli nr. S-107/2008
Ákæruvaldið gegn A.
Verknaðarlýsing í ákæru: ákærða var gefið að sök, sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra einkahlutafélagsins X ehf., að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma virðisaukaskattsskýrslur vegna uppgjörstímabilanna janúar til og með apríl 2006 og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna frá nóvember til og með apríl 2006, samtals að fjárhæð kr. 5.859.214. Þá var ákærða gefið að sök að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma skilagreinar staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna frá mars til og með júlí, september og desember 2006 og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna október 2005 til og með desember 2006, samtals að fjárhæð kr. 11.166.074. Þá var ákærða gefið að sök að hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á virðisaukaskatti sem innheimur var í nafni einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna frá janúar til og með júní 2007, samtals að fjárhæð kr. 12.809.837. Þá var ákærða gefið að sök að hafa eigi afhent á lögmæltum tíma skilagreinar staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna janúar, apríl og maí 2007 og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna janúar til og með september 2007, samtals að fjárhæð kr. 11.173.116.

Héraðsdómur Reykjavíkur, 9. apríl 2008, í máli nr. S-107/2008:
Sannað þótti með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi og öðrum gögnum málsins að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru greinir. Dæmd viðurlög: 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Fésekt kr. 77.300.000, vararefsing 10 mánaða fangelsi.

Brot ákærða voru talin varða við: 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005 að því er varðaði 1. tölulið A og B hluta ákæru, 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005, og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is