Forsíða
Forsíđa
 

Fréttir

26.4.2007
Hérađsdómur Reykjaness, ţann 20. apríl 2007, í máli nr. S-1737/2006

Ákćruvaldiđ gegn A og B:

Verknađarlýsing í ákćru: Ákćrđa A, sem framkvćmdastjóra einkahlutafélagsins X ehf. og ákćrđa B sem stjórnarformanni X ehf. var gefiđ ađ sök ađ hafa ekki skilađ á lögmćltum tíma virđisaukaskattsskýrslum vegna rekstrar félagsins uppgjörstímabilin nóvember – desember 2000 og janúar – febrúar og mars – apríl 2001, hafa skilađ efnislega rangri virđisaukaskattsskýrslu vegna tímabilsins maí – júní 2001, og ađ hafa eigi stađiđ sýslumanninum í Hafnarfirđi, í samrćmi viđ ţađ sem lög áskilja, skil á virđisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins á umrćddum tímabilum, samtals ađ fjárhćđ kr. 2.001.262.

Hérađsdómur Reykjaness, 20. apríl 2007, í máli nr. S-1737/2006:
Ákćrđu kröfđust frávísunar og byggđu á ţví ađ ákćran vćri ekki í samrćmi viđ gögn málsins ţar sem ekki lćgi ljóst fyrir hvađ hefđi veriđ greitt inn á skuld fyrirtćkisins. Ţá hefđi veriđ brotiđ gegn mannréttindum ákćrđu međ óréttlátri málsmeđferđ. Ţá byggđu ákćrđu frávísunarkröfu sína á ţví ađ máliđ hafi dregist óheyrilega. Dómurinn hafnađi ţessum rökum og taldi ekki tilefni til frávísunar málsins. Ákćrđu neituđu sök. A byggđi sýknukröfu sína m.a. á ţví ađ hann hefđi ekki komiđ nálćgt fjármálum félagsins ţar sem ađ starf hans hefđi ađallega fallist í sölustörfum. B byggđi sýknukröfu sína m.a. á ţví ađ hann hefđi ekki vitađ af stjórnarsetu sinni fyrr en í janúar 2002 og ađ hann hefđi aldrei unniđ viđ bókhald eđa fjármál félagsins. Dómurinn taldi ljóst m.a. međ vísan til skyldna ákćrđa A sem framkvćmdastjóra félagsins og ákćrđa B sem stjórnarmanni félagsins, ađ ákćrđu vćru sekir um ţau brot sem ţeim var gefiđ ađ sök í ákćru.

Dćmd viđurlög: Fésekt ákćrđu A og B, kr. 1.000.000 (hvor um sig), vararefsing 3 mánađa fangelsi.

Brot ákćrđu talin varđa viđ 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50, 1988 um virđisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42, 1995 og 191. gr. laga nr. 82, 1998 og 3. gr. laga nr. 134, 2005.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is