Forsíða
Forsíða
 

Fréttir

17.4.2007
Héraðsdómur Reykjavíkur, þann 16. apríl 2007, í máli nr. S 1994/2006

Ákæruvaldið gegn A:

Verknaðarlýsing í ákæru:
I. Brot í rekstri X ehf.: Ákærða voru, sem framkvæmdastjóra X ehf., gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt og almennum hegningarlögum með því að hafa eigi staðið Tollstjóranum í Reykjavík, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins á uppgjörstímabilunum nóvember – desember 2000 og janúar – febrúar 2001, samtals að fjárhæð kr. 646.186. Þá voru ákærða, í sömu stöðu og að framan greinir, gefin að sök brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og almennum hegningarlögum með því að hafa vanrækt að standa skil á skilagreinum vegna afdreginnar staðgreiðslu opinberra gjalda og eigi staðið Tollstjóranum í Reykjavík, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins, á neðangreindum tímabilum, samtals að fjárhæð kr. 2.226.972.
II. Brot í rekstri Y ehf.: Ákærða voru, sem framkvæmdastjóra Y ehf., gefin að sök brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og almennum hegningarlögum með því að hafa vanrækt að standa skil á skilagreinum vegna afdreginnar staðgreiðslu opinberra gjalda og eigi staðið sýslumanninum í Hafnarfirði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins, tekjuárið 2001, samtals að fjárhæð kr. 1.366.614.

Héraðsdómur Reykjavíkur, 16. apríl 2007, í máli nr. S1994/2006:
Ákærði hélt því m.a. fram að hluti brota væri fyrndur, en ekki var fallist á það. Dómurinn taldi sannað ákærði hefði gerst sekur um þau brot sem honum voru gefin að sök í ákæru.

Dæmd viðurlög: 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Fésekt kr. 8.500.000, vararefsing 4 mánaða fangelsi. Brot ákærða talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50, 1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42, 1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, 191. gr. laga nr. 82, 1998 og 3. gr. laga nr. 134, 2005, 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45, 1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42, 1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005 og 1. gr. laga nr. 134, 2005 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995 og 139. gr. laga nr. 82, 1998.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is