Forsíða
Forsíða
 

Fréttir

18.10.2006
Héraðsdómur Reykjaness, þann 21. september 2006, í máli nr. S-965/2005
Ákæruvaldið gegn A:
Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að með því að hafa í starfi sínu sem framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins X, látið undir höfuð leggjast að skila virðisaukaskattsskýrslum vegna tímabilanna janúar til febrúar 2001 og maí til október 2001, og hafa rangfært skilaskyldan virðisaukaskatt vegna tímabilanna maí til desember 2000 og mars til apríl 2001, og með þessu komið einkahlutafélaginu undan því að standa Sýslumanninum í Hafnarfirði, í samræmi við það sem lög áskilja, skil á virðisaukaskatti, samtals að fjárhæð kr. 1.987.068. Ákærða voru einnig gefin að sök brot gegn lögum um tekjuskatt og eignarskatt, með að hafa látið undir höfuð leggjast að skila skattframtölum vegna starfsemi félagsins á árunum 2000 og 2001, gjaldaárin 2001 og 2002, og með því komið félaginu undan greiðslu tekjuskatts, samtals að fjárhæð kr. 852.723. Þá voru ákærða gefin að sök bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald og vanrækt að varðveita bókhaldsgögn vegna starfsemi X ehf. árið 2001.

Héraðsdómur Reykjaness, 21. september 2006 í máli nr. S 965/2005:
Farið var með málið samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála. Með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmdist öðrum gögnum málsins, taldist sannað að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök í ákæru og var þar réttilega færð til refsiákvæða.

Dæmd viðurlög: 4 mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára. Fésekt kr. 5.500.000, vararefsing 3 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50,1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42, 1995, 2. og 6. mgr. 109. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt nr. 90, 2003, sbr. áður 2. og 6. mgr. 107. gr. eldri laga nr. 75, 1981 um tekjuskatt- og eignarskatt, 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga 39, 1995 og 139. gr. laga nr. 82, 1998 og 1. og 2. tölulið 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145, 1994, um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37, 1995 um breyting á þeim lögum, sbr. 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is