Forsíða
Forsíða
 

Fréttir

18.4.2006
Dómur Hæstaréttar Íslands þann 11. apríl 2006, í máli nr. 338/2005:
Ákæruvaldið gegn A og B.

Verknaðarlýsing í ákæru: Ákærða A sem framkvæmdastjóra og stjórnarmanni X ehf. og ákærða B sem stjórnarformanni X ehf. voru gefin að sök brot gegn lögum um virðisaukaskatt með því að hafa hvorki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma, né staðið Tollstjóranum í Reykjavík skil á virðisaukaskatti sem innheimtur hafði verið í nafni X ehf. á árunum 2001 og 2002, samtals að fjárhæð kr. 3.391.325. Þá var ákærðu gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa hvorki skilað skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma né staðið Tollstjóranum í reykjavík skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamann X ehf. á árunum 2001 og 2002, samtals að fjárhæð kr. 11.343.921.

Héraðsdómur Reykjavíkur 10. júní 2005 í máli nr. S-1761/2004:
Ákærðu neituðu báðir sök og byggðu varnir sínar á því að fjármálastjóri X ehf. á umræddu tímabili, hefði haft alla fjármálastjórn félagsins á sinni hendi og í þeim efnum notið fyllsta trausts ákærðu. Með vísan til þeirra ríku skyldna ákærða A sem framkvæmdastjóra X ehf. ákærða B sem stjórnarformanns X ehf. hins vegar, sem mælt er fyrir um í 68. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, taldi héraðsdómur að ákærðu hefði borið að afla sér glöggrar vitneskju um rekstur félagsins, þar á meðal hvort félagið stæði í skilum með greiðslu vörsluskatta svo og að annast um að starfsemi félagsins væri jafnan í réttu og góðu horfi. Gætu ákærðu af þeim ástæðum ekki reist kröfu sína um sýknu á því að þeir hefðu falið ráðnum fjármálastjóra að bera ábyrgð á því að greiðslum yrði hagað á þann hátt að félagið stæði í skilum við innheimtumann ríkissjóðs. Þá var vísað til þess að A hefði að einhverju leyti komið að daglegum rekstri félagsins og að hann hefði í einhverjum tilvikum ritað undir skilagreinar og virðisaukaskattsskýrslu fyrir félagið.
Dæmd viðurlög: Ákærðu A og B: 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi í þrjú ár. Fésekt kr. 14.500.000 (hvor um sig), vararefsing 6 mánaða fangelsi.

Brot talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995, 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995 og 139. gr. laga nr. 82/1998.

Dómur Hæstaréttar Íslands þann 11. apríl 2006, í máli nr. 338/2005:

Ákærði B áfrýjaði máli sínu til Hæstaréttar og krafðist sýknu. Reisti hann kröfu sína á því að hann hefði ekki komið þannig að fjármálastjórn X ehf. að það varðaði hann refsiábyrgð. Með vísan til stöðu B hjá fyrirtækinu, þátttöku hans í rekstri félagsins og að gættri 44. gr. laga um einkahlutafélög, var niðurstaða héraðsdóms um sekt B staðfest. Vanskil félagsins á innheimtum virðisaukaskatti vegna uppgjörstímabilanna frá janúar til ágúst 2001 höfðu verið greidd upp. Þá hafði tæplega þriðjungur vanskila vegna uppgjörstímabilsins september – október verið greiddur upp, en sú fjárhæð taldist ekki veruleg greiðsla inn á umrætt uppgjörstímabil. Ekkert hafði verið greitt inn á uppgjörstímabilin nóvember – desember 2001 og maí – júní 2002. Virðisaukaskattsskýrslum hafði einungis verið skilað vegna uppgjörstímabilanna september – október 2001 og maí – júní 2002. Inn á vanskil félagsins á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda höfðu verið greiddar kr. 505.194. Þeirri fjárhæð var ráðstafað inn á greiðslutímabilið maí 2001, en taldist ekki verulegur hluti vanskilanna vegna þess greiðslutímabils. Skil höfðu verið staðin á öllum skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda. Með hliðsjón af framangreindu taldi Hæstiréttur Íslands skilyrði ekki uppfyllt til þess að beita refsilækkunarákvæði laga nr. 134/2005. Niðurstaða héraðsdóms um fésektarrefsingu ákærða var staðfest. Með hliðsjón af greiðslum inn á vanskilin þótti mega ákvarða fangelsisrefsingu ákærða fjóra mánuði, skilorðsbundna til tveggja ára.

Dæmd viðurlög: 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Fésekt kr. 14.500.000, vararefsing 6 mánaða fangelsi.

<< til baka
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is