Forsíða
Forsíða
 

Fréttir

18.8.2010
Starf í boði
Skattrannsóknarstjóri ríkisins auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögfræðings.

Umsækjendur skulu hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði. Æskilegt er að þeir búi yfir þekkingu á skattarétti, stjórnsýslurétti og meðferð sakamála.

Gerð er krafa um að viðkomandi hafi skipulagshæfileika, sé nákvæmur, talnaglöggur, eigi auðvelt með mannleg samskipti og búi yfir góðri færni í rituðu íslensku máli.

Í boði eru áhugaverð og krefjandi verkefni við undirbúning og framkvæmd refsimeðferðar vegna skattalagabrota og ýmis lögfræðistörf tengd skattrannsóknum og refsimeðferð hjá embættinu.

Um er að ræða fullt starf, góð starfsskilyrði og sveigjanlegan vinnutíma. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Fjármálaráðuneytisins við BHM. Nánari upplýsingar um starfið gefur Theodóra Emilsdóttir, forstöðumaður lögfræðisviðs, í síma 550 8800.

Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf og annað er máli kann að skipta, þurfa að hafa borist skattrannsóknarstjóra ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík, eða á netfangið te@skattur.is, eigi síðar en 6. september 2010.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
10.6.2010
Úrskurður héraðsdóms Reykjavíkur, 1. júní 2010, í máli nr. S-1957/2008
Kröfum ákæruvaldsins á hendur félags og þriggja einstaklinga vegna eigin skattskila vísað frá dómi, tvöföld refsing. Ekki fallist á frávísun málsins hvað varðar fyrirsvarsmenn félagsins.
>> Lesa meira
Eldri fréttir
 
Skattrannsóknarstjóri ríkisins | Borgartúni 7 | 150 Reykjavík | Sími: 550 8800 | Fax: 550 8850 | Netfang: skattrann@skattrann.is